Faxi

Ukioqatigiit

Faxi - 01.04.1989, Qupperneq 25

Faxi - 01.04.1989, Qupperneq 25
Róðurinn 9. júní 1915 Sögumaður Einar Gestsson, Norðurkoti Miðneshreppi fæddur 20. nóvember 1898 Við vorum tveir vermenn gerðir út frá Barðamesi við Norðijörð (Suð- urbyggðinni). Við rérum tveir á Færeyskum bát, sex rónum, en kallaður þriggja manna bátur. Ég var talinn háseti og skipsveiji minn formaður, og var á þrítugs- aldri. Sá sem leiðbeindi mér á leiðinni austurá ,,Firði“ hétSigurgeir Jóns- son og var Vestfirðingur, en átti heima í Reykjavík. Hann var út- gerðarmaður um veturinn hjá Sig- urði Bergmann í Fuglavík á Mið- nesi. Sigurgeir var ráðinn á m/b Báruna frá Norðfirði, hún fórst 11. júní 1915 í suðaustan hvassviðri. Eins og áður er getið, rérum við að morgni 9. júní, einskipa frá Barðar- nesi, aðrir bátar fóru í kaupstaðinn að Nesi í Norðfirði. Þetta var annar róðurinn okkar. Þá var búinn að vera norð-austan stormur, en var að lygna. Þegar við vorum komnir á flot, varð formaðurinn þess var að úrið hafði gleymst heima, hann renndi að landi og bað mig að hlaupa eftir því. Síðan var róið af stað út að Norðfjarðarhomi, sem var um hálftíma róður í logni, fómm við suður fyrir Homið, og ,,fallið“ látið bera bátinn suður, meðan það entist. Veiðafærin vom handfæri. Við urðum lítið ,,varir“, formaðurinn fékkeinn ,,stútungsfisk“, önnurvar veiðin ekki. Eftir nokkra tíma setu var farið að huga til heimferðar, því sjórinn var farinn að ýfa sig. Sett var upp segl og siglt upp undir land, síðan tekið saman seglið og mastr- inu stungið undir þóftuna að fram- an, síðan rémm við norður með Hominu, vindur var á móti, en hægur og báran á hlið. Þegar við komum á móts við ,,Mónes“ kom alda utan að, en ekki ffábmgðin hinum, en reis snögglega upp við borðstokkinn og gnæfði hátt yfir okkur, ekkert var hægt að gera, og brotnaði aldan yfir okkur. Við vor- um að rétta áramar fram og álútir þegar aldan féll á okkur. Fallið var þungt og við sátum niðurkeyrðir á þóftunum, ég sá bátinn fullan af sjó og farviðinn á floti. Ég hef sennilega misst meðvitund um stund, því næst er ég vissi af mér var ég að sökkva og höfuðið snéri niður, fór ég þá að snúa mér og synda upp á við og þegar upp kom sá ég land og um leið var eins og að mér væri hvíslað að ég kæmist í land. Ég sneri mér við að gá að bátnum, en hinn manninn sá ég ekki, og færði mig því yfir kjölinn, ef manninum skyldi skjóta upp þar meginn, á sömu stund skaut honum þar upp og náði hann þá taki á bátnum. Við vomm sömu megin við kjölinn og seig báturinn þá undan þunganum og réttist við. Við skriðum upp síð- una og vomm á borðstokknum um leið og báturinn réttist við, og féllum inn í hann um leið, en báturinn ætl- aði að velta áffarn, en ég notaði þunga minn til að halda honum í jafnvægi. Stakkurinn minn var á floti í bátnum þegar hann réttist við, og batt ég lykkju af færinu mínu um hann, austurstrogið var á floti, en þýðingarlaust var að ausa bátinn því hann stakkst í hveija bám og hefði fyllst jafnóðum. Ég tók mastrið sem var fast undir þóftunni, og reyndi að stjaka, þá sagði formaðurinn: „reyndu að stjaka“, en ég fann eng- ann botn, þótt ég ræki mastrið á kaf. Ég reyndi að snúa bátnum að landi með mastrinu, en það var svo svert að ég náði ekki taki utan um mastrið og seglið, setti ég þá mastrið í handarkrika minn og gat þannig haldið því í jafnvægi. Færin vom óuppgerð og runnu út og tók ég þá eftir að stakkurinn minn var runnin út líka, þá lagði ég ffá mér mastrið og dró slakann af færinu og stakkinn með, þegar stíft var orðið á færunum tók ég hníf sem stunginn var undir ,,knélistann“ og skar á færið, síðan byijaði ég að snúa bátnum undan bárunni, með mastrinu, þá sagði formaðurinn hásum rómi: ,,jæja svona fór það, en þér er borgið þú ert svo vel synd- ur“, það tókst að snúa bátnum und- an bárunni. Við landið að sunnan vom tvö sker nokkuð há og aðdjúp, sem mikið braut á, einnig vom þama grynningar sem líka braut á, en fyrir miðju var sandfjara sem braut við langt út. Ég stóð upp í framrúminu og gætti að jafnvæginu og að halda bátnum undan öldunni, formaðurinn sat á öftustu þóftunni og hélt sér þar. Þegar fyrsta brotið lenti á bátnum var hann vel réttur við brotinu, þá kallaði formaðurinn: ,,Haltu þér nú“, þá sleppti ég mastrinu og hall- aði mér fram á við og hélt með ann- arri hendinni í, ,ræðið“ og steig af hallann. Brotin skullu yfir bátinn sem rann áffam þar til honum sló flötum í sandfjörunni. Ég beið um stund í bátnum þar til hann var orð- inn vel landfastur og fór þá útúr honum. Formaðurinn sat kyrr, hann virtist ekki hafa fylgst vel með því sem var að gerast. Ég bað hann að koma upp úr bátnum því nú vær- um við komnir í land, hann sinnti því ekki í fyrstu, en kom þó loks. Hann var orðinn mjög kaldur, sjór- inn hafði gengið viðstöðulaust yfir hann eftir að við komum í brotinn, hann var ósyndur og hafði því drukkið mikinn sjó, ég studdi hann upp úr flæðamálinu og fór með hann upp að klettum nokkuð ofar og þar studdi hann sig við og hvíld- ist. Fyrir ofan fjöruna var á að giska fjögra metra hátt klettabelti og þar í líkt og einstígi upp að ganga. Þetta var eina sandQaran austan við Homið ffá svonefndri Sandvík. Ég var í ,,vaxbuxum“ sem ég fór úr, helti úr leðurstígvélum, vatt sokkana og fór í þá aftur og í stígvél- in en henti vaxbuxunum upp á klettana, vatt vel sjóvettlingana og lét þá á hendur formannsins og sagði honum að vera rólegur því nú væri ég að fara að sækja hjálp og hann skyldi reyna að hreyfa sig á meðan og passa að sofna ekki. Síð- an lagði ég af stað upp einstigið. Þetta gerðist allt á lágum sjó og nú var komið logn og léttskýjað og sól með hita. Hér var yfir fjall að fara til næsta bæjar, og brattar melskriður. Þegar ég var kominn upp í miðjar skriður var ég orðinn sveittur. Þegar upp kom sá ég götuslóða fyrir norð- an mig og vissi hvert hann lá. Ég hraðaði mér heim til mín sem var rúmlega klukkutíma gangur. Þegar ég fór að hugsa betur var mér ljóst að heima væri ekki annað fólk en húsmóðirin og dóttir hennar, hélt ég því að næsta bæ þar sem karlmenn voru heima. Fólkið varð undrandi að sjá mig húfulausann og alvotann, það vissi að við höfðum róið um morguninn og spurði strax: ,,Hvar er formaðurinn, er hann dauður“? Nei lifandi var hann þegar ég fór ffá honum. Sagði síðan hvað hefði skeð, og spurði hvort ekki væri hest- ur heima við. Það var strax brugðið við og sóttur hestur, hitað kafíi og látið á flösku. Konumar deildu um það hvort ekki ætti að hafa kaffið sætt eða ekki en fararstjórinn taldi það engu máli skipta aðeins að kaff- ið væri vel heitt. Karlmennimir komu sér fljótt af stað en vildu að ég kæmi á eftir þeim, ef ske kynni að þeir hittu ekki á réttan stað til að fara niður í fjöru. Það var sent heim til mín og komið með sokka og létta skó, nóg kaffi að drekka sem þótti sjálfsagt. Síðan lagt af stað aftur og maður með mér. Þegar við komum að heiðarbrekkunni sáum við hilla undir björgunarliðið efst á heiðinni, og biðum við þá niðri eftir þeim. Formaðurinn var það hress að hann gat setið á hestinum. Nokkrir af hjálparmönnunum fóra að setja bátinn undan sjó. For- maðurinn spurði mig á leiðinni hvort ég myndi þora að róa með honum aftur ég sagði það vera sjálf- sagt. Formaðurinn lá einn dag eftir þetta. Ég hafði fataskipti eftir góða hressingu og varð ekkert meint eftir. G.B.J. FAXI 141

x

Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.