Faxi

Ukioqatigiit

Faxi - 01.04.1989, Qupperneq 28

Faxi - 01.04.1989, Qupperneq 28
Erindi Jóns Böðvarssonar á Karvelskvöldi Merkar þjóðlífslýsingar í bókum Karvels Ögmundssonar Góðir áheyrendur. Mörgum finnst útjöskuö yrðing að á þessari öld hafi fslenska þjóðin skeiðað eða brokkað frá járnaldar- stigi til tölvualdar. En ósönn er hún ekki eins og flest- ar alhæfmgar. Órækar sannanir eru margar. Ein þeirra er Sjómannsævi eftir vin minn Karvel Ögmundsson, þjóðlífslýsing í þrem bindum í um- gjörð sjálfsævisögu. II. Ævisagnaritun hefur verið einn gildasti þáttur íslenskra bókmennta frá öndverðu. Meginþorra íslend- ingasagna má fella undir þá grein sagnálistar. Grettis sögu og Gísla- sögu Súrssonar getum við nefnt sem dæmi. Ritun lausamálssagna féll niður um fimm alda skeið. Rímur leystu þær af hólmi en voru sama marki brenndar. Ævi stórmennis var rakin frá æsku og uppvexti til æviloka. Ekki féll sagnalist í gleymsku þótt frumsamdar sögur væru á því skeiði hvorki á skinn né pappír skráðar. Sögur og þættir um stórbrotna eða einkennilega menn lifðu í munn- legri geymd um land allt - konur ekki síður en karlar — urðu slíkir sagnameistarar að frásagnarlistin foma dó aldrei heldur lifði sem falin glóð í hlóðum og beið nýrrar dag- renningar. Er aftur var tekið að rita nýjar bækur í lausu máli ruddu ævisögur brautina. Kunnust eru rit Jóns Indíafara Ólafssonar, Jóns Magnús- sonar þumlungs og Jóns Stein- grímssonar eldprests. Þótt sögur þessar virki sem hólmar í hafi og bókmenntafræðingar telji lausa- málssögur ekki ná fótfestu aftur fyrr en með skáldsögum Jóns Thor- oddsens og þjóðsagnaútgáfu Jöns Arnasonar má fullyn'ia að frásagn- arlist og fróðleiksþorsti vom megin- stoð mannlífs og mennta á íslandi allar þær aldir sem íslensk þjóð barðist fyrir lífi sínu í bókstaflegum skilningi við bág kjör, bjargarskort og válynd veður. En þjóðin rétti úr kútnum og upp rann öld bóka, þéttbýlis, fjöl- breyttra skemmtana, blaða, út- varps og sjónvarps. Þá sögðu vísir menn að öld sagnaþulanna væri lið- in — innlendir sem erlendir. III. Sagnalist íslendinga að fomu og fram eftir öldum bar oft á góma er ég ungur maður las íslensk fræði við Háskóla íslands. Oft var sagt að hún heföi týnst með bændamenning- unni - aö nýir menningarmiðlar hefðu leyst hana af hólmi í þéttbýlis- kjörnum nútímans. Ég tileinkaöi mér þetta viðhorf sem margt annaö er kennt var í æðstu menntastofnun Kurvel Ogrnundsson. íslendinga á Melunum í Reykjavík - hélt að sagnalist væri nú einungis til í bókum — taldi að Halldór Lax- ness væri að flytja minningarorö um hina göfugu sagnaskemmtan er hann sagði í Nóbelsverðlaunaræðu í Stokkhólmi 1955 — að hinn fomi ís- lenski sagnastíll hefði aldrei dáiö heldur lifað á vörum manna, eink- ÚTGERÐARMENN! Þeir útgerðarmenn smærri báta, sem róa reglu- bundið frá Keflavík eða Njarðvík og hafa áhuga á aðgangi að sjálfsafgreiðslugasolíudælunni við Keflavíkurhöfn eru velkomnir til viðskipta. Vinsamlegast hafið samband við Olíusamlag Keflavíkur og nágrennis í síma 11600 og leitið nánari upplýsinga. Ölíusamlag Keflavíkur og nágrennis um gamalla kvenna og sjálfur hefði hann numið þessa list af ömmu sinni. Sú hét Guöný Klængsdóttir á Kirkjuferju í Ölfusi. Eftir að háskólanámi lauk varð mér ljóst að margnefnd sagnahefð varðveittist ekki einungis í sveitum heldur blómgaöist engu síöur viö sjávarsíðuna meöal vermanna — einkum undir Jökli og einmitt það- an er mnnin söguhetja þessa dags. Ég kynntist Karvel Ögmundssyni skömmu eftir að ég kom til starfs og dvalar á Suðumes 1976. Seint mun ég gleyma fundi er hann flutti langa lýsingu á mótekju. Hann mælti af munni fram og studdist ekki við skráð minnisatriði. Samt var efnis- skipan sem í lýtalausum fyrirlestri, framsögn sæmandi úrvalsþul og málfar í Islendingasagnastíl enda vakti frásögnin óskipta athygli allra fundarmanna þær fjörutíu mínútur sem Karvel talaöi. Margoft síðan hef ég hlýtt á hann flytja ýmiss konar fróðleik með því- líkum hætti - en ekki undrast. Sér- hver sem einu sinni hefur heyrt Kar- vel segja frá veit að íslensk sagnalist lifir meðan hann er ofar moldu. IV. Karvel fæddist 30. september 1903 að Hellu í Beruvík í Breiðavík- urhreppi fyrir vestan Snæfellsjökul, sjötti í röð tólf systkina. TVö dóu í bernsku. Annaö þeirra var drengur er Karvel hét. Hann dó sjö mánaða gamall, tíu mánuðum áður en sá Karvel fæddist er við þekkjum - og kallaöur var Velli í sveitinni, síðar Kalli á Hellissandi. Fæðingarstað- urinn var fátæklegur torfbær. Þar var hlóöaeldhús í frambæ og fjós- baðstofa inn af gangi með fimm rúmum. Ekki var upphitun önnur en sú sem af kúnum lagöi. Hrjóstrugt var og haröbýlt. Þar er leikvöllur veðra og brims en sjón- deildarhringur fagur. Á æskuslóð- um hans býr enginn lengur. Sú byggð og margar aðrar víða um land eyddust er árabátar viku fyrir vél- knúnum fiskiskipum þótt fleiri or- sakir eigi þar þátt. Ögmundur Andrésson, faðir Karvels, var frá Einarslóni nokkru

x

Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.