Faxi

Árgangur

Faxi - 01.04.1989, Síða 29

Faxi - 01.04.1989, Síða 29
sunnar í sömu sveit. Hann var greindur maður, vel hagmæltur og skemmtinn. Sólveig Guðmundsdóttir, móðir Karvels, var úr Purkey á Breiðafirði. l'ar er og fegurð mikil en með öðr- um hætti en í Einarslóni og á Hellu. Gróður er meiri en grjót — og fremur fugla að sjá en fisk eða sel. Vinaleg hlýja einkennir Purkey en harka og heiðríkja Einarslón og nágrenni. Sex ára gamall hóf Karvel þátttöku í bústörfum heima. Mikil upphefð þótti drengnum að teljast liðtækur í hrossasmölun. Tökum eftir hvernig metnaður, sjálfsbjargarhvöt — og tillitssemi einkenna athafnir hins unga drengs: Eg hafði loforð fyrir því að ég mætti ríða einn, enda var mér valinn mjög gæfur hestur, en ég sá að mamma hafði áhyggjur af þessu ferðalagi og sagði við pabba að hann yrði að gæta drengsins vel svo að hann yrði ekki fyrir óhappi. Einar bróðir átti að vera meö í þessari ævin- týralegu för, en hann var alvanur aö stjórna hestum, enda fjórum og hálfu ári eldri en ég. Ég gat ekki sofnað um kvöldið af tilhlökkun, ég átti að ríða Bleikskjónu Bjargar Guð- mundsdóttur frá Stóruhellu. Bleikskjóna var fleygivökur og svo stillt og gæf sem frekast varð á kosið. Það var vaknað eld- snemma um morguninn, allir voru að búa sig til ferðar. Hestam- ir voru að kroppa hlaðvarpann. Ég tók lítið eftir öðrum hestum en Bleikskjónu, sem ég dáðist að, því hún átti að bera mig á baki sínu í þessa ævintýralegu för. Eg hafði varla lyst á mjólk og rúg- köku, sem mamma rétti mér til að boröa áður en við legðum af stað, svo mikill feröahugur var í mér. Nú voru allir feröbúnir, Einar lét sinn hest standa í ofurlitlum halla, gekk nokkur skref aftur á bak frá hestinum, hikaði ofurlít- ið, setti sig allan í herðarnar og tók sprettinn. Hann setti hend- urnar og olnbogana á bak hests- ins og gat í fyrstu atrennu kom- ist á bak. Hann leit til mín bros- andi og sigri hrósandi rétt eins og hann vildi segja: Þetta gat ég, en þetta getur þú ekki Velli. Eg var dapur í bragði, þvílíkt þrek- virki að komast á hestbak af næstum þvíjafnsléttu. Skyldiég nokkurn tíma geta þetta? Eg labbaði til hennar Bleikskjónu minnar og strauk með minni litlu hendi um flipann. Hún nuddaði blíölega snoppunni viö hliðina á mér. Eg teygði mig upp aö eyranu og hvtslaði ósköp lágt: Viltu labba með mér að hesta- steininum svo að ég komist á bak. Hún lyfti höfðinu rétt eins og hún væri að samþykkja bón rnína. Eg vissi svo sem að hún skildi mig ekki, en ég kunni samt betur við að leita sam- komulags, en forðaðist að láta Einar bróður heyra til mín. Ég tók í tauminn, leiddi Bleik- skjónu að steininum og hoppaði upp á hestasteininn. Nú gat ég lagt fótinn yfir bakið um leið og ég tók í faxiö. Ég hafði haldið í taumendann með annarri hend- inni. Nú settist ég, reisti mig upp, en hélt til öryggis í faxið og leit brosandi til Einars eins og ég vildi segja viö hann: ég er kom- inn á hestbak án hjálpar, alveg eins og þú. Á meðan þetta gerð- ist hreyfði Skjóna sig ekki, en þegar ég tók í tauminn sneri hún sér ósköp varlega eins og hún gerði sér grein fyrir því, að þetta væri lítill krakki sem hún bar á baki sér, krakki sem hún yrði að fara mjög varlega með. Hellubærinn brann í desember 1910 er Karvel var sjö ára. Skömmu síðar flutti fjölskyldan til Hellis- sands - og átti Karvel aldreiö síðan heimili í fæðingarsveit sinni þótt fjölskylda hans hyrfi aftur á þær slóðir. En í bókinni Sjómannsævi kemur ljóslega fram mótunarmáttur ÞJ0fSTfl ÞEKK1NG ^ Kiddi, Björk og Ingi, málarameistarar Dropans, eru til þjónustu reiðubúin og veita þér faglega ráðgjöf með litaval og annan undirbúning. Og ef þú vilt get- urðu fengið þau á staðinn til að ráð- leggja þér áður en þú byrjar að mála. Dropinn leggur áherslu á þjónustu og þekkingu - fyrir þig.... PdíOpÍAA Hafnargötu 90 - Sími 14790 FAXI 145

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.