Faxi

Ukioqatigiit

Faxi - 01.04.1989, Qupperneq 31

Faxi - 01.04.1989, Qupperneq 31
varð engin fræðgarför. Við vor- um fjórir á: Formaðurinn, Egg- ert Ebeneser Jansson, ættaður fra Höskuldsey, Skúli halti, er var bæklaður á báðum fótum og gekk undir nafninu Skúli halti, og ég. Nú var byrjað að kenna mér áralagið, sem gekk nú hálf skrykkjótt. Haldið var vestur fyrir Brimnes, en þegar nálgaðist nesið var komin smákvika og báturinn farinn að kippast til og mér til undrunar fór mér að líða illa innvortis. begar við fórum fyrir nesið varð ég að leggja árina inn, halla mér út af borðstokkn- um og kasta upp, og því hélt ég áfram allan þennan róður. lig var kominn í kynni við þann kvilla er átti eftir að hrjá mig og pína í nær hálfa öld. begar ég var 13 ára kom ég eitt sinn út í borvaldarbúö. t'að var um vertíðarlok. Jens sagði mér þá að hann ætti smábát til sum- arveiða, er Vigfús Jónsson smiður, tengdasonur hans, hefði smíðað ári fyrr. Sér þætti sá bát- ur of lítill og vildi hann selja hann og láta Vigfús smíða annan stærri. Ég spuröi Jens hvort hann vildi selja mér bátinn næsta vor, því þá yrði hans nýi bátur fullsmíðaður. „Heldur þú aö þú getir keypt litla bátinn minn? Hann á að kosta fimm- hundruö krónur." Ég sagöist eiga tvöhundruð krónur og ef vinur minn, Sigunfur S. Sigur- jónsson í Miðbæ, keypti hann á móti mér, þá gætum viö greitt hann saman næsta vor. I þessu kemur buríður húsfreyja upp og heyrir á tal okkar. Hún segir við Jens: ,,Er það nokkurt vit að selja svona ungum strákum bát. beir gætu farið sér að voða?“ En Jens svaraði: „Það verður að sýna ungum og efnilegum drengjum traust. Þeim vex hug- ur við það. Eg var líka ungur þegar mér var trúað fyrir að fara með bát viö Breiöafjaröareyjar. „Fleira var ekki rætt, þetta skyldi geymt sem leyndarmál þar til rætt hefði veriö viö vin minn Sigurö og fengið leyfi afa hans og ömmu, því hjá þeim ólst hann upp. Allt fór samkvæmt áætlun. Siguröur var jafn áhugasamur og ég um aö eignast bát. Leyfið var fengiö og um vor- iö þegar bátur Jens var tilbúinn fór ég út í verslun Thng og Ris, hitti verslunarstjórann, Daníel Bergmann, og bað um fimmtíu króna lán út á væntanlegt fisk- innlegg. Daníel var mér alltaf mjög góður. Hann þekkti vel föð- ur minn og hafði notið leiðsagn- ar hans um Snæfellsnes svo sem áður er sagt. Þetta umrædda lán var mér veitt. Þannig vani Karvel útgeröarmað- ur 13 ára gamall. Húseigandi á Sandi varð hann 19 vetra - og um líkt leyti formaður á Blíðfara frá Stykkishólmi. TVítugur hélt Karvel á fjarlægar slóðir. Þar biðu hvorki gull né grænir skógar. Eftir þriggja vikna atvinnuleysi á Siglufirði gerð- ist hann þar verktaki við uppskipun á kolum og farnaðist vel að vanda. Næst gerðist hann söltunarmaður í Hrísey en sneri aftur að sjósókn uns hann settist á skólabekk á ísafiröi. Skólinn mun hafa staðið í þrjá og hálfan mánuö. Ég held að þetta tímabil hafi verið skemmtilegasta tímabil minnar æfi. Þarna vorum við innanum góða félaga og vini, áhyggjulaus- ir af öllu á góðu heimili. Lær- dómurinn gekk vel. Eg hafði alltaf þráð að njóta einhverrar menntunar, en átti aldrei kost á því. Ég átti ekki erf- itt með lærdóm og þessi tími var undra fijótur að líða. Þarna voru úrvalsdrengir saman komnir, sem allir höfðu áhuga á sjó- mennsku, enda margir vanir sjómenn, þótt ungir væru. Bók sú er notuð var sem kennslubók gekk okkar á milli undir nafninu Pálína, enda var hún samin af Páli Halldórssyni skólastjóra Sjómannaskólans í Reykjavík. Bók þessi var talin góð kennslu- bók, örfáar skekkjur voru þó í henni. Karvel lauk skipstjórnarprófi með ágætum árangri og hugöist halda heim en þangað var enga skipsferð að fá. Skemmtileg er frásögn höf- undar af ævintýralegri göngu hans úr ísafjarclardjúpi til Hellissands. ÁI lellissandi var Karvel heimilis- fastur uns hann flutti að Narfakoti í Innri-Njarðvik 1931 - tæplega þrítugur. Sökum þess að mér er einkum ætlað að Qalla um bækur Karvels mun ég ekki nánar víkja að atburðum í ævi hans nema í tengsl- um við ævisöguna. I Einkareikningur Landsbankans 1 1 er tékkareikningur sem tekur I iMm 1 öörum framz Hair vextir, kostur á I ■ yfirdráttarheimildláni og margvís- legri greiðsluþjónustu. Reikningur sem er saminn aðþínum þörfum ínutíö og framtíó. g Landsbanki íslands Banki allra landsmanna Útibú á Suðurnesjum: Flugstöð Leifs Eiríkssonar, Sandgerði og Grindavík. FAXI 147

x

Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.