Faxi - 01.09.1990, Blaðsíða 17
þeirra Klapparhjóna; ekki reynd-
ust þau luma á slíkum auðæfum í
reiðufé fremur en vænta mátti og
var þá ekki annað að gera en að
skrifa bú þeirra upp og meta til
skuldarinnar. Búiö var skrifaö upp
í stóru og smáu vorið 1812, og
með því að mörgum leikur máske
hugur á að vita um veraldlegar
eigur alþýðufólks á Suðurnesjum
á öndverðri síðustu öld verða
reytur Klapparhjónanna nú taldar
upp.
Þar fundu menn eftirfarandi:
Einn bátur gamall og rifinn með
fjórum árum, stjórafæri, mastri og
stýri, níu vetra færleikur jarpur,
100 fiskar blautir, ein kista, einn
tjörukaggi, hálftunna með lifur,
kvörn, sjö færi, einn lampi, tvær
ónýtar axir, lítill pottur með loki
og annar brotinn, handfæri, brók
og skinnstakkur, sjóskór, þrjú
hrífusköft, eitt orf, páll og reka,
stampur, bátsár, hárreipi á þrjá
hesta, klifberi, þrjár fötur, ausa,
þrjú trog, diskur, kistill, sex fjalir í
lofti, fimm fjalir í þili og hurð á
járnum, þrjár fjalir í palli og rúm-
stokkur, börur, skrína, kjörhald,
eitt traf úr bómull og tvö úr lérefti,
bláröndóttur klútur og annar
rauðröndóttur og einn úr bómull,
málindi með doppum, spegill,
trafakefli, svunta með þremur
hnöppum, þrír askar, kalbretti,
kanna, Ijósaponta, stokkur með
rusli og fimm pör af sjóvettling-
um. Þessir munir voru metnir til
32 ríkisdala og tólf skildinga og
vantaði þannig svolítið upp á að
fengist upp i skuldina.
Hér er ekki tóm til að rekja sögu
þeirra Vilhjálms og Guðrúnar
frekar. Sagan vísar vissulega til
heims sem var grimmur og mis-
kunnarlaus; lífsbaráttan var hörð
og lítið mátti út af bregða. Nútíma-
mælistikur á glæp og refsingu
eiga hér að sönnu engan rétt, en
vart getur maður annað en
hneigst til meðaumkunar með
sögupersónum, og ekki síður
hjónunum á Klöpp, sem þurftu nú
að heyja baráttuna allslaus, held-
ur en barninu Vilborgu Sigurðar-
dóttur. Sagan greinir sig frá hefð-
bundnum frásögnum um illa með-
ferð á sveitarómögum, að svo
virðist sem þau Vilhjálmur og
Guðrún hafi fátæktina og fáfræði
tímans sér til nokkurra málsbóta.
Það gerir harmleikinn ekki minni,
heldur líklega meiri.
GÓÐAR BÆKUR FRÁ
LANDSBANKANUM
LANDSBOK
er ný verðtryggð 15 mánaða bók, sem ber
5.75% vexti og tryggir því mjög góða raun-
ávöxtun sparifjár. Allir íslendingar ættu að
eignast LANDSBÖK, - því fyrr, því betra.
KJÖRBÓK
er mjög góð bók, alltaf laus og því tilvalin
fyrir þá sem vilja ekki festa sparifé sitt
í lengri tíma en fá þó góða ávöxtun.
KJÖRBÖK ber 2.84%raunávöxtun
KJÖRBÓK 1. þrep 4.13% raunávöxtun
KJÖRBÓK 2. þrep 4.69% raunávöxtun
L
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
Leifsstöö - Sandgeröi - Grindavik
FAXI 181