Faxi

Volume

Faxi - 01.09.1990, Page 22

Faxi - 01.09.1990, Page 22
Verðlaunasaga Karvels Ögmunds- sonar er komin út Saga Karvels nefnist REFIR og er hún ein af þremur verðlaunabók- um úr samkeppni Námsgagna- stofnunar um fræðandi lesefni handa börnum á grunnskólaaldri. Eins og kunnugt er hefur Karvel komið víða við sögu á langri ævi. Því til staðfestingar er nærtækt að vitna til ævisögu hans SJÓ- MANNSÆVI, sem er þriggja binda ritverk sögumannsins. Á yngri árum var hann refa- skytta á Snæfellsnesi en það er að hluta vettvangur verðlaunafrá- sagnarinnar. I formála fyrir bókinni Refir kemst höfundur m.a. svo að orði: „Kæru lesendur! Ég vona að við lestur þessarar bókarfáið þið haldgóða þekkingu á lifnaðarháttum og lífsbaráttu refsins. Þetta litla, vitra og harðgerða dýr hefur þurft að berjast við mann- skepnuna í þúsund ár á íslandi og er þó enn ósigrað." Námsflokkarnir að fara af stað í FS Á næstunni mun kennsla hefj- ast í Námsflokkum Suðurnesja. Það er Fjölbrautarskólinn sem sér um rekstur þeirra, og þá með því fororði, að reksturinn verður al- gjörlega að standa undir sér, enda hefur FS enga fjárveitingu til þessa. Námið er undirbúið á skemmtilegan og raunsæjan hátt. Auglýst verður eftir umsóknum um nám, eða kannski væri réttara að segja að auglýst verði eftir til- lögum um nám. Væntanlegir nemendur geta þá haft samband við FS og lýst því námi sem þeir hafa áhuga á að stunda. Þegar öll- um umsóknum og tillögum hefur verið safnað saman, þá fyrst verð- ur hægt að sjá, hvaða nám verður hægt að bjóða uppá í vetur. Með þessari aðferð gefst ágætt tækifæri fyrir fólk að komast í nám sem það hefur lengi langað til að stunda, en ekki haft tækifæri til. Faxi vill hvetja fólk til að gefa þessu námi gaum og nýta sér það til hins ýtrasta. Það verður sífellt deginum Ijósara, að fólk getur haft bæði gagn og gaman af að afla sér menntunar, jafnvel þó fólk sé löngu komið af hinum hefð- bundna skólaaldri. Forsíðumyndin Opnuð hefur verið ný verslun í Keflavík — Stórmarkaður Kefla- víkur. Það er hinn knái kaupmaður Jónas Ragnarsson í Nonna og Bubba sem hefur komið henni á legg. í næsta blaði verður ítarlegt viðtal við Jónas um verslunar- rekstur og fleiri mál. Nýtt starfsfólk Keflavíkurkirkju Einar Örn Einarsson er tekinn við kór Keflavíkurkirkju. Síðastlið- ið ár var hann organisti Akranes- kirkju. Þar stofnaði hann og stjórn- aði barnakór við kirkjuna og kór fermingarbarna, jafnframt því að stjórna kirkjukórinn. Flann setti m.a. upp söngleikinn Líf og friður með báðum barnakórunum. Einar hefurstundaðorgelnám hjá Flauki Guðlaugssyni í sjö og hálfan vetur og einn vetur hjá Pavel Smid. Flann hefur kennt 5 vetur á orgel í Tónlistarskóla Mosfellsbæjar og tónfræði við Tónlistarskóla Flafn- arfjarðar veturinn 1988—1989. Einar lauk 8. stigs prófi frá Söng- skólanum í Reykjavík sl. vor og hefur auk þess sinnt raddþjálfun. Tónlistarstörf hafa verið hans aðal atvinna sl. 9 ár, þótt hann sé að- eins 27 ára gamall. Einar hefur sungið sem einsöngvari og er einnig kórfélagi í Ljóðakórnum. Flann hefur mikið starfað við Bú- staðakirkju og leyst af sem organ- isti á ýmsum stöðum. í sumar sótti hann orgelnámskeið í Flam- borg i Þýskalandi. Helga Guðrún Bjarnadóttir, hef- ur einnig verið ráðin meðhjálpari og kirkjuvörður við Keflavíkur- kirkju. Hún hefur unnið hjá bæjar- fógetaembættinu og kaupfélag- inu auk þess sem hún hefur sung- ið í kirkjukórnum um árabil. Tímaritið Þroskahjálp 3. tölublað 1990 er komið út. Út- gefandi er Landssamtökin Þroska- hjálp. í þessu tölublaði kynnumst við samskipan fatlaðra og ófatlaðra forskólabarna og því hve miklum árangri er hægt að ná þegar sam- an fer áhugi, þekking og kunnátta. Dagheimilið Ösp var heimsótt og rætt við Jónínu Konráðsdóttur forstöðukonu. Þá skýra foreldrar tveggja snáða sem eru á Öspinni frá viðhorfum sínum og einnig fleiri sem koma við sögu. Helga Veturliðadóttir sem hefur 30 ára reynslu af umönnun barna segir frá reynslu sinni og kemur margt athyglisvert fram hjá henni. Hún hefur alið upp 11 börn á fjöl- skylduheimili og finnst að slík heimili eigi enn rétt á sér. Af öðru efni má nefna erindi um væntingar foreldra eftir Guðmund Ragnarsson sem hann flutti á ráð- stefnu nýlega og þýdda grein um ÞROSKAHJÁLP .t. m. u toxt. «xk - wi.4io. Down syndrom og heyrnarmein. Þá er skýrt frá skólaslitum Þroska- þjálfaskóla íslands og nokkrir þroskaþjálfar teknir tali þar sem spáð er í framtíðina. Spjallað er við einn af umræðuhópum þroska- heftra og segja fulltrúar opinskátt frá reynslu sinni úr daglegu lifi. Tímaritið Þroskahjálp kemur út sex sinnum á ári. Það er sent áskrifendum og fæst í lausasölu í bókabúðum, á blaðsölustöðum og skrifstofu samtakanna að Suð- urlandsbraut 22. Áskriftarsíminn er: 91-679390. /-----------\ 186 FAXI

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.