Faxi - 01.12.2000, Blaðsíða 12
FAXI .KÍIiÁIÍIil) 2(111(1
það var aðeins lán mitt að vera hærri
en hún, sem kom í veg fyrir það, að
tárin sæjust í augnakrókunum á mér.
En hefðu þau sést, þá hefði um leið
verið búið með það, að ég gæti í íyrsta
skiptið á ævinni (kannski það eina
líka) virst sterkari en hún mamma
mín.
Daginn eftir lá hreinlega við, að ég
óskaði þess að ég hefði gefist upp og
haldið suður til Keflavíkur affur með
henni móður minni. Þá sat ég aleinn
og eins og illa gerður hlutur við borð,
sem var ætlað tveimur, en ég nýtti nú
einn, af þeirri einföldu ástæðu, að all-
ir aðrir virtust þekkjast og höfðu þeg-
ar valið sér sessunaut. En skyndilega
birtist þar maður með ungan pilt sér
við hlið. Bersýnilega feðgar á feið.
Hann gengur ákveðinn og einbeittum
skrefum beint að mér og skilar af sér
sveininum við hlið mér. Þar var ég þá
loksins búinn að fá sessunaut minn
fyrsta vetur í skóla og ævilangan vin
og um margt ráðhollan sérfræðing, því
sveinninn sá ama, sem ekki var hár í
loftinu á þeirn tíma né fullorðinslegur
útlits, átti eftirað verða skrifstofustjóri
Dóms- og kirkjumálaráðuneytisins,
Olafur Walter Stefánsson. Og rétt
áður en fyrsta kennslustundin hófst,
kom þar allt í einu eins og kveðja frá
kvöldskólanum hans séra Eiríks í líki
skólasystur minnar þaðan, Sigur-
bjargar Pálsdóttur, Dillu, sem nú var
komin í hvorki meira né minna en
þriðja bekk Verslunarskólans. Og í
krafti þeirrar tignar og áræðis sem
fylgir æðri bekkjum, leit hún inn í
stofuna til okkar, kallaði brosandi og
hýr til mín og sagði upp yfir alla þau
oið, sem ég gleymi aldrei, svo fundust
mér þau uppörvandi í öllu umkomu-
leysi mínu á þeirri stundu: „Nei,
sko,“ sagði hún. „En hvað þú varst
duglegurað komast í A-bekkinn.“ Og
þar með var hringnum eiginlega lok-
að, því bæði var undirbúningur kvöld-
skólans gott veganesti og ekki síður
kveðja þessarar minnar góðu skóla-
systur þaðan frábær vegabréfsáritun
út í samfélagið við mín væntanlegu
skólasystkini. Og það veit ég, að ekki
er ég einn um það, að sjá minningam-
ar úr skóla sem þann bjarmann, sem
skærastur logi stafar frá.
BIRTMEÐLEYFI
ÚTGEFANDA.
Greiðslur fyrir
læknisþjónustu
og heilsugæslu
Almennt gjald Lífeyrisþegar
Koma á heilsugæslustöð eða til heimilislæknis á dagvinnutíma kr. 700 kr.300 *
Koma á heilsugæslustöð eða til heimilislæknis utan dagvinnutíma -1100 -500*
Vitjun læknis á dagvinnutíma -1100 -400
Vitjun læknis utan dagvinnutíma -1600 -600
Rannsóknir og greiningar:
Krabbameinsleit -1500 -500
Koma til röntgengreiningar eða rannsókna með beiðni -1000 -300
Séríræðingar og sjúkrahús:
Koma til samningsbundins sérfræðings, á göngudeild, - 1400 + 40% - 500 + 13.3%
slysadeild eða bráðamóttöku sjúkrahúss af umframkostnaði af umframkostnaði
* Börn og unglingar undir 16 ára, í öðrum tilvikum greiða þau almennt gjald.
Pessir greiöa eftir gjaldskrá fyrir lífeyrisþega: Ellilífeyrisþegar 70 ára og
eldri, örorkulífeyrisþegar, ellilífeyrisþegar 67-70 ára sem nutu örorkullífeyris
til 67 ára aldurs, ellilífeyrisþegar 60 - 70 ára sem hafa óskertan ellilífeyri, börn
með umönnunarbætur og þeir sem hafa verið atvinnulausir í sex mánuði eða
lengur. Atvinnulausir þurfa að sýna staðfestingu frá
Atvinnuleysistryggingasjóði en aðrir skírteini frá Tryggingastofnun.
Ekki þarf aö greiða fyrir komu vegna mæðra- og ungbarnaverndar eöa
heilsugæslu í skólum.
Umboð sjúkratrygginga
Vatnsnesvegi 33, Keflavík, sími 421 4411
60 FAXI