Faxi - 01.12.2000, Blaðsíða 44
FAXl J(ÍLAIíLAI) 1999
i
Enginn mun mótmæla þeirri
fullyrðingu að sá maður sem
mest hefur látið að sér kveða
í keflvísku fótboltalífi á síðasta ára-
tug er Júgóslavinn Velemir Sargic.
Hann hefur leyst af hendi frábært
starf sem ungir knattspymuáhuga-
menn hafa óspart notið góðs af.
Hann þjálfaði hér fyrst á árunum
1990 til 1997 en flutti síg þá um set
og þjálfaði á Möltu í tvö og hálft ár.
Kom síðan aftur til Keflavíkur um
síðastu áramót. Eg hitti Velemir að
máli af eitt kvöldið þegar hann var
við þjálfun í ReykjaneshöIIinni og
hóf að sjálfsögðu viðtalið á gömlum og
góðum sið með því að spyrja um ætt
og uppruna.
Eg er fæddur 1950 í bænum Sombor
í Norður-Júgóslavíu og átti því
skemmtilegt afmæli fyrir stuttu. Bær-
inn er dæmigerður bær í landbúnaðar-
héraði þar sem mikið er framleitt af
matvælum en einnig er þar verksmiðja
sem framleiðir rafgeyma fyrir bifreiðar.
Segðu okkur aðeins
frá fjiilskyldu þinni
Faðir minn dó fyrir nokkrum árum
en móðir mín er enn á lífi og er hún átt-
ræð. Hún vann við hjúkrun á sjúkrahúsi
en faðir minn vann við jámbrautimar.
Bæði þurftu þau að taka þátt í síðari
heimstyijöldinni. Ég á eina systur sem
starfar á skrifstofu. Sem ungur maður
lék faðir minn knattspymu en segja má
að styijöldin hafi bundið enda á feril
hans en hann var góður knattspymu-
maður.
I hvaða skóla gekkst
þú eftir að skyldunámi Iauk?
Ég lauk námi í menntaskóla og fór
síðan í verslunarskóla í ljögur ár. Þegar
ég hafði lokið námi þar sótti ég sex
mánaða námskeið fyrir knattspymu-
þjálfara og fór eftir það í háskóla þar
sem ég nam knattspymuþjálfun í tvö
ár. Með þetta nám að baki var ég orðinn
löggiltur knattspymuþjálfari og seinna
meir fékk ég þar að auki skírteini frá
FIFA. Ég hef talsvert ritað um knatt-
spyrnu og hef meðal annars skrifað um
fótbolta fyrir félögin hér í Keflavík og
Njarðvik.
Þú lékst sem atvinnumaður
á þínum yngri árum, var það ekki?
Jú. Ég lék með knattspymuliði í
Sombar og lékum við í 2. deild. Þetta
var á árunum 1968 - 1975 og er óhætt
að segja að deildin hafi verið mjög sterk
enda vom u.þ.b. tvöþúsund knatt-
spyrnufélög í þessum hluta lands-
ins.Tvö árin enduðum við í 2. sæti en
ekki tókst okkur að vinna okkur upp
um deild.
Kata
Voru allir leikmenn
2. deildar atvinnumenn?
Það vom þeir allir og einnig u.þ.b.
helmingur leikmanna í 3. deild. Það er
líklega nærri lagi að bera saman 3.
deildina og 1. deildina hér hvað þetta
snertir.
Jasmina
Hversvegna hættir þú að keppa?
Ég hætti vegna meiðsla. Ég varorð-
inn mjög slæmur í hnjánum og mér
var ráðlagt af lækni að fara ekki í að-
gerð vegna þess að hún væri mjög
áhættusöm. Ég lagði því skóna á hill-
una eins og þið segið hér á íslandi og
snéri mér að fullu að þjálfun og við það
hef ég starfað æ síðan. Ég byijaði að
þjálfa yngstu drengina hjá mínu
gamla félagi og eftir að ég hafði verð
með þá í þrjú ár urðu þeir meistarar.
Síðan fór ég að þjálfa eldri drengja-
Ilokka og undir minni stjóm vaið 18
ára liðið meistari. Mér gekk sem sagt
ágætlega í þessu starfi mínu. Um
þetta leyti féll meistaraflokkurinn nið-
ur í 3. deild og ég tók þá að mér að
þjálfaliðiðog einnig 2. Ilokkinn og var
ég með þessi lið í þrjú ár. Ég gerðist
einnig aðstoðarþjálfari hjá júgósla-
víska unglingalandsliðinu.
Velemir giftist eiginkonu sinni,
Kötu, árið 1978 og ári síðar fæddist
einkadóttir þeirra, Jasmina. Kata og
Jasmina hafa af og til verið hér með
Velemiren nú stundar Jasmina sál-
92 FAXI