Faxi - 01.12.2000, Qupperneq 45
FAXI JÓLAIIIiD 1999
fræðinám við háskóla í heimalandi sínu
°g Kata hefur umsjón með landsskika
sem þau hjónin eiga í Sombor þar sem
þau m.a. rækta grænmeti.
Segðu okkur nú aðeins frá því þegar
þú komst fyrst til íslands.
Eins og ég sagði áður fór ég að þjálfa
knattspyrnu eftir að ég hætti sjálfur að
keppa en vann jafnframt í rafgeyma-
verksmiðjunni í Sombor. Það var svo á
árinu 1989 að vinur minn, Mile
Stanojev, hafði samband við mig og
spurði hvort ég væri ekki til í að koma
úl Islands og aðstoða hann við þjálfun í
Njarðvík. Ég sló til og kom til Njarðvík-
ur og fór að aðstoða Mile við að þjálfa
þar. Við höfðum verið saman í skóla og
ég vissi að hann hafði farið til íslands.
Ekki vaið dvölin lengi í Njarðvík því
árið eftir réðst ég til ÍBK og fór að þjálfa
yngri flokkana.
Hvemig var ástandið
hjá ÍBK á þeim tíma?
Meistaraflokkurinn var í 2. deild og
yngri flokkamir voru ekki mjög sterkir
heldur. Þá var Rúnar Lúðvíksson for-
maður knattspyrnudeildarinnar og
hann vildi setja markið hátt og það
hvatti mig að sjálfsögðu til dáða. VB
hófúm að byggja upp þjálfunina eftir
mínum aðferðum en segja má að þær
séu byggðar upp á æfmgaprógrömmum
frá FIFA, frá háskólanum sem ég hafði
stundað nám í og svo mínum eigin hug-
myndum. I framhjáhlaupi má segja frá
því að nokkur æfmgaprógrömm frá
mér eru nú notuð í háskólanum í
Novisad. Ég reyni ávallt að taka Mt
tillit til hins unga aldurs drengjanna og
reyni að gera ekki meiri kröfur til þeirra
en þeir eru færir að standa undir.
Eg veit að þú byrjar með drengina
þegar þeir eru aðeins 5 eða 6 ára
gamlir. Hvað Ieggur þú höfuðáherslu
á í byrjun?
Ég tel að það sé mjög þýðingarmikið
í byijun að kenna þeim almennt um
íþróttir. Ég kenni þeim að íþróttir bjóði
bæði upp á gaman og alvöru. Síðan
verða þeir að kynnast þeim þáttum sem
þeir verða ávallt að fara eftir ef þeir ætla
sér að stunda æfingar með hópnum.
Þeir verða að hlusta, fara ávallt í bað eft-
ir æfingu, vera stundvísir og síðast en
ekki síst verða þeir að hafa ánægju af
æfmgunum. Þegar þetta er að baki byrj-
um við á samhæfingu og einstak-
lingsæfingum. Ég segi drengjunum að
þeir geti ekki æft fótbolta eingöngu á
pizza og kók, þeir veiða að vera sterkir
til að leika knatttspymu.
Hversu fljótt sástu að þú varst á rét-
tri leið hjá ÍBK? Og hér er önnur
spuming, hvar er Keflavík statt í
dag knattspyrnulega séð?
Ég fór að sjá árangur að tveimur
árum liðnum. En mér þykir þú spyrja
stórt. Hvar er Keflavík statt í dag?
Keflavík er í fyrstu deild en liðinu gekk
ekki vel í sumar og orsakanna fyrir því
er víða að leita. En það em miklir hæfi-
leikar í þessu liði og eins og þú veist þá
vaið 2. flokkur meistari í sumar. Ég tel
þýðingarmikið að liðið fái tækifæri til að
finna sinn eigin takt og að það nái að
stabilisera sig ef ég má nota það orð.
Það em margir ungir piltar í 2. flokki
sem gætu gert það gott með liðinu en
það er undir því komið hvaða stefhu fé-
lagið tekur hvort þeir fá tækifæri til
þess eða ekki.
Hvaðfinnst þér svo
um Reykjaneshöllina nýju?
Að sjálfsögðu hefur tilkoma hennar
haft mikið að segja fyrir alla þá sem em
að æfa knattspymu. En mér finnst að
skipulagið á notkuninni mætti vera
betra. Tímamir sem við fáum passa
ekki vel við þær aðstæður sem við búum
við. Margir í meistaraflokknum em að
vinna til klukkan sex en þá á æfing
þeirraaðbyrja. Svo lýkur henni klukk-
an tuttugu mínútur í átta. Við höfúm
reynt að fá tíma til átta en það hefur
ekki gengið. Þetta er of stuttur tími, ég
tala nú ekki um ef við ætlum að leika
æfingaleiki. Mér finnst ég verða
að benda á að ef menn vilja eiga
FAXI 93