Faxi - 01.12.2000, Blaðsíða 2
WASM
3. TÖLUBLAÐ - 60. ÁRGANGUR
Útgefandi: MálfundafélagiðFaxi, Keflavík.
Afgreiðsla: Vallargata 17, sími 421 1114.
Blaðstjóm: Helgi Hólm ritstjóri,
Kristján A. Jónsson aðstoðarritstjóri,
Gunnar Sveinsson, Þorsteinn Erlingsson
og Hilmar Pétursson
Netfang ritstj.: helgiholm@mi.is
Hönnun, setning, umbrot, litgreining,
filmuvinna og prentun:
Stapaprent ehf.
Grófin 13c • 230 Keflavík
Sími: 421 4388 • Fax: 421 1180
Netfang: stapapr@centrum.is
Faxi sextugur
Meöal efnis:
Jólin á Góustöðum
Fyrstu tvílyftu húsin í Keflavík
Urdráttur úr bókinni
- Ólajur biskup œviþœttir
Söngsveitin Víkingar
Jólin í Saurbæ
Krummaskuð
Jólin nálgast
Kristnihátíðir í Utskálaprestakalli
Sögur af Tyrkjanum Nasreddin
Njarðvíkurprestakall
- í tilefni Kristnitökuafmœlis
Tyrkland
- Feröasaga Þorsteinns Eggertssonar
Fyrsta bílslysið í Keflavík
Evrópskt tungumálaár 2000
Jólin í fyrri daga
Ekki pizza og kók
- viðtal við Velimir Sargic
Engill vonarinnar heitir listaverkið sem prýð-
ir forsíðu Faxa. Höfundur þess er Erlingur
Jónsson. Verkið var nýlega á sýningu í Víði-
staðakirkju sem tileinkuð var þúsund ára
kristni á Islandi. Erlingur hefur nú látið af
starfi við listadeild Kennaraháskólann í Osló
en er enn í fullu fjöri sem listamaður eins og
þetta fallega verk her með sér. Ljósmynd:
Heimir Stígsson.
Þegar ég tók að mér ritstjóm blaðsins
Faxajyrir einum jjórtán árwn þá hvarflaði
ekki að mér að ég œtti eftir að endast svo
lengi í því hlutverki. Reyndin hefur þó orðið
önnur. Við félagamir í Málfundafélaginu
Faxa höfum lagt metnað okkar í að koma
blaðinu reglulega til lesenda og metum við
mikils áhuga og tryggð þeirra sem stutt hafa
við bakið á okkur gegnum tíðina. Markmiðið
hefur oftast verið að koma út 6 - 8 blöðum
hvert ár þó ekki hafi það alveg gengið upp
hin síðari ár.
Með þessu jólablaði lýkur sextugasta ár-
gangi Fcixa og það erþví viðeigandiað jylg-
ja þessu blaði úr hlaði með nokkrum orðum.
Faxi leggur ojtast ekki mikið upp úr því að
vera með nýjustu fréttir heldur birtast gjar-
na frásagnir um atburði sem hafa lifað í
minni manna nokkra stund. Að sjálfsögðu
eru undantekningar á þessu. Eg man sér-
staklega eftir því þegar Hólmfríður Karls-
dóttir var valinfegursta kona heims. Þá var
Jón Tómasson ritstjóri og var hann að und-
irbúa blað þegar þessi atburður gerðist.
Hann hafði pata afþví að hann gœtifengS
mynd afHófí áforsíðu og með miklu kappi
tókst honum aðfá hana og blaðiðkom út um
það bil sem fegurðardrottningin kom heim
og hvílíkforsíða! Faxi seldist vel íþað skipt-
ið.
Ejhistök í Faxa hafafylgt sömu stejhu og
sett var í upphafi fyrir sextíu áruni Blaðið er
öllum opið til að skrifa um öll þau mál sem
til framfara horfa. Þjóðmál, héraðsmál,
menningar- og félagsmál. Mikil áhersla
hefur verið lögð á að hlúa að sagnfrœðilegum
skrifum og margar greinar og frásagnir í
Faxa hafa síðar meir orðið að ómetanlegum
heimildum um fyrri tíma. Þessari stejhu
mun bbðið áfram fylgja því við stöndum í
þeirri trú að blaðið hafi mikilvœgu hlutverki
aðgegna í samfélagi okkar.
Það hefur verið sér-
staklega ánægjulegt
fyrir félagana í Mál-
fundafélaginu Faxa
að blaðið skuli hafa
komið út óslitið í öll
þessi ár. Það segir sig
sjálft að það er ekki
auðvelt að keppa á markaði þar sem önnur
blöð eru borin ókeypis heim að dyrum. Faxi
hefur fram að þessu verið seldur en salan
hefur stöðugt verið að dragast saman. Upp á
síðkastið hefur alvarlega komið til tals að
fara að dreifa blaðinu ókeypis. Verði þetta
gert mun blaðið þutfa enn meir en áður að
reiða sig á auglýsingatekjur en að sjálfsögðu
skapar betri útbreiðsla betri grundvöllfyrir
auglýsingaöflun. Hvort af þessu verður
mun tíminn leiða í Ijós.
Undirritaður mun nú í síðasta sinn rit-
stýra Faxa. Þetta hefur verið ánœgjulegur
tími og ég hefátt góð samskipti viðfólk um
allar byggðir Suðumesja. Það hefur einnig
verið skemmtilegt að setja mark sitt á þetta
merkilega blað því eitt og annað hefur hrip-
að úr ritstjórapennanum þessijjórtán ár. En
nú er kominn tími til að nýr ritstjóri taki við
þeim ágœta penna. Ég vil nota þetta tœki-
fœri til að þakka öllum þeim sem ég hef
starfað með þessi ár, bœði í blaðstjórnum
Faxa, þeim sem hafa séð um prentun blaðs-
ins, öllum blaðsölubömunum, og síðast en
ekki síst öllum þeim sem hafaaðstoðaðviðað
afla ejhis í blaðið. Þegar upp er staðið og
verkið metið þá er það efiii blaðsins sem
skiptir máli.
Megi Mánaðarblaðið Faxi áfram koma
fyrir augu lesenda á Suðurnesjum og skipa
þar góðan sess um mörg ókomin ár.
Gleðileg jól
og farsœlt nýtt ár
Helgi Hólm, ritstjórí
50 FAXI