Faxi

Árgangur

Faxi - 01.12.2004, Blaðsíða 5

Faxi - 01.12.2004, Blaðsíða 5
aldrei komast inn í Ársól og því rukum viö af stað, keyrðum út um allt og fundum að lokum þetta garnla frystihús, sem ekki hafði verið í notkun um nokkurra ára skeið,“ sögðu þær systur og brostu, enda töldu þær sig hafa fengið þann ákjósanlegasta stað fyr- ir þessa starfsemi. Mikið rými og mikla möguleika til að víkka út starfsemina. Hvað viljið þið helst vikka út? „ Ja, bara ef þú vissir. Við erum fullar af hugmyndum, en höfum takmarkaðan tíma til að láta alla okkar drauma rætast. En í fyrsta lagi viljum við stækka vinnuaðstöð- una svo við getum haldið stærri námskeið og boðið fleirum aðstöðu og síðan viljum við að- greina söludeildina betur frá annarri að- stöðu og koma síðan upp aðstöðu fyrir mósaík og einnig séraðstöðu fyrir glervinn- una sem sífellt verður vinsælli og fleira mætti nefna. En þetta kemur allt. Tíminn vinnur með okkur.“ Eti nú voruð þið að minrika við ykkur til að hafa það náðugra. Hefur sú orðið raunin? Systurnar horfa á hvor aðra og brosa. „Nei alls ekki, ef eitthvað, þá höfum við sett í fluggírinn miðað við það sem við vorum að gera áður. En þetta er hinsvegar svo skemmtilegt að við erum ekkert að pæla í allri þessari vinnu. Ef við hinsvegar hefðum vitað fyrirfram hvað við vorum að fara út í, þá hefðum við aldrei stokkið út í þetta. Og eftir á að hyggja, þá var þetta hrein geð- veiki, þ.e. öll sú vinna sem nánast varð að gerast einn tveir og þrír. En þar sem þetta er svona skemmtilegt, að þá finnur maður ekki fyrir neinu nema gleði og góðri þreytu." En hvaða staifsemi fer hér aðallega fram? Nú við erum bara í skítnum, segja þær og kíma. „Nei nei. Við erum bara dagsdaglega í keramikssullinu sem við setjum í mótin og brennum síðan í ofni til að gera það klárt til málunar. Þannig kjósa flestir okkar kúnnar að fá þetta keramikið afgreitt, en hér áður fyrr, þá gerði fólk þetta venjulega allt saman sjálft frá a til ö. Okkar vinna er því mest megnis forvinna hér í keramikgalleríinu, en kannski verðum við með þannig námskeið í framtíðinni, ef eftirspurn verður eftir slíku námskeiði. En aðallega kemur fólk hingað á námskeið til okkar eða að það er að kaupa keramikstyttur til að mála á sjálft heima hjá sér. Eruð þið eitthvað að hugsa um að fœra út kví- amar og fiölga handverks- og tómstundanám- skeiðum? Já, við erum náttúrulega alltaf með opinn huga hvað það varðar. En við verðum bara að taka eitt skref í einu þó svo að okkur langi mikið til að gera hitt og þetta. Við kvörtum ekki undan aðgerðarleysi þessa dagana, höfum varla undan. En síðar meir þá langar okkur að bjóða upp á meiri fjöl- breytni hvað varðar þessi námskeið. En á meðan svona vel gengur að þá hugsum við fyrst og fremst um að sinna eftirspurninni, en við seljum mjög mikið í verslanir bæði í bænum og einnig úti á landi. Hitt þ.e. meiri fjölbreytni námskeiða kemur vonandi þegar hægjast fer um hjá okkur. Við vitum af mikl- um áhuga m.a. í glervinnslunni auk annarra námskeiða sem eru á döfinni. Kannski mað- ur hugi að samstarfi við einstaklinga sem luma á góðum tómstundahugmyndum. Alla- vega eni allar hugmyndir vel þegnar auk þess sem við erum tilbúnar í ýmislegt sem gefur lífinu gildi, sögðu þessar hressu systur sem lýsa svo sannarlega upp skammdegið með öllum sínum flottu jólavörum. Sjón er sögu ríkari og hvetur Faxi fólk til að kíkja í heimsókn í þetta glæsilega gallerí. Flest verður góðum að gamni Samkaup I úrvai FAXI 5

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.