Faxi

Árgangur

Faxi - 01.12.2004, Blaðsíða 34

Faxi - 01.12.2004, Blaðsíða 34
Minning: Ingibjörg Salóme Danivalsdóttir (Lóa) Fœdd 29. 12. 1913 - Dáin 21. 10. 2004 - jarðsett 29.október Ingibjörg fæddist 29.12.1913. Hún lést 21. október sl. Foreldrar hennar voru hjónin Danival Kristjánsson bóndi á Litla-Vatns- skarði, Laxárdal í Austur Húnavatnssýslu, f. 15.02. 1842 - d.25.08. 1925 og Jóhanna Jónsdóttir húsfreyja, f. 30.10. 1866 - d. 06.07. 1931. Danival og Jóhanna eignuðust átta börn saman en Danival átti einnig tvær dætur af fyrra hjónabandi. Ingibjörg var yngst systkinanna en þau eru nú öll látin. Ingibjörg giftist Guðmundi Stefánssyni vélstjóra í Ytri Njarðvík, d.17.06.1977. Þau eignuðust sjö börn og sex þeirra eru á lífi. Stefán Ingi f. 01.09. 1938, Jóhann Valur f. 06.03.1940, Kristín f. 01.11. 1942, Gunnar Örn f. 29.04. 1945, Haukur Viðar f. 09.11.1947 og Ingigerður f. 27.12.1956. Ingibjörg bjó fyrstu ár ævi sinnar í Lax- árdalnum en fluttist til Kristínar, eldri syst- ur sinnar, sem bjó þá á Reykjaströnd í Skagafirði, eftir að faðir þeirra lést. Hún gekk í Kvennaskólann í Reykavík en hugur hennar hneigðist ætíð til frekari mennta. Þegar hún var um tvítugt kom hún suður í Njarðvíkur. Þar vann hún fyrir sér um tíma en gekk svo í hjónaband með Guðmundi Stefánssyni. Ingibjörg var mjög virk í félagsmálum í Njarðvík. Hún var ein af stofnendum Kven- félags Njarðvíkur og var síðar gerð að heið- ursfélaga. Hún var einnig ein af stofnend- um Framsóknarfélags Njarðvíkur, fyrsti formaður þess og síðar heiðursfélagi. Hún gegndi ýmsum trúnaðarstörfum í hrepps- nefnd Njarðvíkur um árabil sem fulltrúi Framsóknarflokksins. Ingibjörg var virkur félagi í stúkunni Vík í Keflavík og hafði ein- nig umsjón með starfi barnastúkunnar Sumargjafar í Njarðvík, ásamt Karveli Ög- mundssyni og Sigríði Hafliðadóttur. Sál- rannsóknarfélag Suðurnesja var stofnað árið 1969 en Ingibjörg var einn af aðal- hvatamönnum að stofnun þess, sat í stjórn félagsins árum saman og sinnti for- mennsku þess. Síðar var hún gerð að heið- ursfélaga. Ingibjörg bjó öll sín búskaparár í Stef- ánshúsi við Borgarveg í Njarðvík. Síðustu árin átti hún einnig samastað á heimili dóttur sinnar Ingigerðar. Ingibjörg var jarðsungin frá Ytri-Njarð- víkurkirkju föstudaginn 29. október 2004. Silja Dögg Gunnarsdóttir Lóa móðursystir mín er látin. Við fráfall minnar kæru frænku er margs að minn- ast. Mín fyrstu kynni af Lóu, eins og hún var ætíð nefnd, var þegar hún dvaldi á heimili foreldra minna norður á Reykja- strönd í Skagafirði á sínum unglingsárum. Hún hafði þá misst foreldra sína og tók móðir mín hana inná heimili sitt. Var hún hjá okkur í nokkur ár. Þrettán ára aldursmunur var á okkur Lóu. Hún var mjög góð við mig og bræður mina, Jóhann og Kristján, en við litum á hana sem stóru systur á þessum bernsku- árum okkar. Strax á unga aldri hafði hún frá mörgu eftirtektarverðu að segja. Hún var mjög næm á umhverfi sitt og sá margt merkilegt sem aðrir sáu ekki. Hún var afar berdreymin og með mikla skyggni- gáfu sem fylgdi henni alla ævi. Þegar gesti bar að garði vissi hún oftast fyrir- fram hverjir þar væru á ferð. Stutt frá íbúðarhúsi okkar fyrir norðan er mjög stór steinn sem Grásteinn heitir. Þar sat frænka mín oft með okkur bræðurna og sagði okkur frá fólkinu sem í steininum bjó og sem hún sá og heyrði í. Okkur tókst ekki að sjá það en við bræðurnir töldum okkur heyra mannamál í gamla Grásteini. Lóa hafði mikil áhrif á mig á þessum árum. Henni tókst að láta mig sjá það sem hún sá með því að taka í höndina á mér og segja: „Nú hlýtur þú að sjá.“ Og það pass- aði. Mér fannst þetta einkennilegt og vandist þessu. Árin liðu og við hættum þessum leik. Frænka mín fluttist suður tæplega tví- tug að aldri, settist að í Ytri-Njarðvík og eignaðist góðan mann og heimili við Borg- arveginn. Hún fór að lesa í kaffibolla og spá fyrir fólki sem langaði að vita um framtíð sína. Oftast voru þetta ungar kon- ur sagði hún og brosti við. Lóa tók sér alltaf góðan tíma í að ræða við föður minn um pólitíkina en hún varð snemma mjög pólitísk og einstaklega lag- in áróðurskona. Hún var stofnfélagi í Framsóknarfélagi Njarðvíkur og vann mikið að flokksmálum á meðan heilsan leyfði. Árin liðu, f jölskylda mín fluttist til Keflavíkur og samgangur jókst. Oft hafði hún samband við mig í kringum kosning- ar, sérstaklega þegar ég sinnti bæjarmál- um í Keflavík. Betri samherja var ekki hægt að hugsa sér. Stundum ræddum við drauma og annað líf en á því hafði hún fastmótaðar skoðanir. Hún hafði það að leiðarljósi allt sitt líf að sjá það góða í fari fóks og öllum leið vel í návist hennar. Þann 29. desember 2003 varð frænka mín 90 ára. Við Jóhann bróðir minn heimsótt- um hana árla dags og vorum hjá henni stundarkorn. Þá ræddum við um æskuár okkar í Skagafirðinum forðum. Hún rifj- aði upp með okkur dásamlegar stundir sem við áttum saman við fjörðinn fagra. Kötturinn aldni, Jökull Jakobsson, hélt sig í návist hennar og virtist fylgjast vel með, en alltaf átti hún kött og stundum fleiri en einn, enda mikill dýravinur. Þótt aldurinn væri farinn að segja til sín hvað sjón og heyrn varðar þá var hugsun henn- ar ávallt skýr. í síðustu heimsókn okkar bræðra talaði hún um ættarmótið sem haldið var á Flúð- um sumarið 2003 og hvað hún hefði skemmt sér vel. Þegar við erum að kveðja hana segir hún: „Ansi væri nú gaman að halda fljótlega ættarmót. Ég væri alveg til í að fara á það og meira að segja dansa, ef einhver ungur maður vildi bjóða mér upp.“ Þessu síðustu orð hennar við úti- dyrnar á Borgarvegi 2 lýsa frænku minni vel, hvað hún hafði gaman af lífinu og kunni að skemmta sér án áfengis, eins og hún sagði oft. Afkomendur hennar sáu vel um hana og hún gat notið þess að vera heima. Að fara á elliheimili var aldrei á dagskrá. Fjöl- skylda mín á góða minningu um Lóu sem aldrei gleymist. Við hjónin, ásamt systkinum mínum og mökum þeirra, vottum afkomendum Lóu innilega samúð. Hilmar Pétursson 34 FAXI

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.