Faxi - 01.12.2004, Page 31
L ' j
Jtr i | W r i:
jftP^ \V"k II |i
Baðstofan 35 ára á næsta ári
Þeir sem luma á sögum eða myndum hafi samband við Faxa
Baðstofan er sá félagsskapur listamanna
sem samfleytt hefur starfað hér á Suður-
nesjum í 34 ár. En á næsta ári eða nánar
tiltekið þann 17. október verður þessi
félagsskapur 35 ára og af því tilefni ætlar
Faxi að rekja sögu Baðstofunnar á af-
mælisárinu.
Og til að gera þessa sögu sem ítarlegasta
væri gott ef einhverjir félagar bæði fyrr-
verandi og núverandi, sem lumuðu á
skemmtilegum myndum eða sögum að
koma þeim á framfæri við ritstjóra Faxa,
Guðna B. Kjærbo sem allra fyrst eða í síma
699 4206. Einnig er hægt að koma upplýs-
ingum til Ástu Árnadóttur myndlistarkonu.
Einnig er hægt að senda tölvupóst á rit-
stjóra á k_gudni@hotmail.com.
En til að taka smá forskot á sæluna, birt-
um við hér á síðunni hópmynd af sýnend-
um Baðstofunnar frá 1986, en þá voru
meðal kennara, Eiríkur Smith og Jón
Gunnarsson.
Að lokum. Verið nú dugleg að senda
okkur vísbendingar til að gera þetta sem
best.
Með fyrirfram þakklæti
Guðni Bjöm Kjærbo, ritstjóri Faxa.
FAXI 31