Faxi

Ukioqatigiit

Faxi - 01.12.2004, Qupperneq 42

Faxi - 01.12.2004, Qupperneq 42
Afsláttarkort og hámarksgreiðslur Hámarksgreiðslur gegn fullu gjaldi fyrir læknis- og heilsugæsluþjónustu á árinu Hámarksgreiðslur gegn fullu gjaldi fyrir læknis- og heilsugæsluþjónustu á hverju almanaksári eru : Fyrir einstaklinga, kr. 18.000 á ári. Fyrir elli- og örorkulífeyrisþega sem greiða lægra gjald fyrir læknis- og heilsugæsluþjónustu, kr. 4.500 á ári. Fyrir öll börn yngri en 18 ára í sömu fjölskyldu, kr. 6.000 á ári. Þeir sem hafa verið atvinnulausir lengur en í sex mánuði greiða eftir gjaldskrá fyrir lífeyrisþega. Framvísa þarf staðfestingu frá Vinnumálastofnun / vinnumiðlun. DÆMI: Einstaklingur hefur verið atvinnulaus í meira en sex mánuði og þarf að leita læknis. Viðkomandi á ekki afsláttarkorten á rétt á að greiða sama gjald og samið hefur verið um fyrir lífeyrisþega. Athugið að hámarksupphæð fyrir atvinnulausan einstakling vegna afsláttar- skírteinis er kr. 18.000. Eftir að hámarksgreiðslum er náð á viðkomandi rétt á afsláttarkorti. Þeir sem sækja um afsláttarkort eftir að hafa verið búnir að borga meira en sem nemur hámarksgreiðslunni, geta fengið 2/3 hluta af mismuninum endurgreiddan. *Frá apríl 1999. Afsláttarkort afgreidd gegn framvísun greiðslukvittana Þegar hámarksgreiðslu er náð fæst afsláttarkort gegn framvísun kvittana í þjónustumiðstöð Tryggingastofnunar á Laugavegi 114 og umboðum hennar utan Reykjavíkur. Athugið að ekki er unnt að afgreiða afsláttarkort nema gegn framvísun greiðslukvittana frá lækni. Gætið þess að halda saman greiðslukvittununum sem þið fáið afhentar þegar greitt er fyrir læknisþjónustu. Ef greiðsla hefur verið innt af hendi í gegnum heimabanka þarf að koma með staðfestingu (útprentun, kvittun) á greiðslunni. Gegn framvísun afsláttarkorts greiðist lægra gjald fyrir ofangreinda þjónustu. Afsláttarkortin gilda út almanaksárið. Kostnaður sem sjúkratryggður einstaklingur greiðir vegna heimsóknar til lækna án samnings við Tryggingastofnun telst ekki með þegar hámarksupphæðin er reiknuð saman. Kostnaður vegna flutnings með sjúkrabíl og tannlæknareikningar eru ekki heldur teknir með inn I há- marksupphæðina. Þótt hámarki vegna afsláttarkorts sé náð þarf áfram að halda saman kvittunum vegna læknis- þjónustu og heilsugæslu. Fari kostnaður vegna læknisþjónustu, heilsugæslu og lyfja yfir ákveðið mark getur fólk átt rétt á endurgeiðslu. Endurgreiðslur vegna mikils læknis-,lyfja og þjálfunarkostnaðar Endurgreiðslur vegna læknis-, lyfja- og þjálfunarkostnaðar (sjúkra-, iðju- og talþjálfun) eru háðar árstekjum (sjá upphæðir kafla 3 í handbók TR). Endurgreitt er fyrir þrjá mánuði í senn, þ.e. fyrir hvern ársfjórðung. Tekjur fjölskyldu og samanlagður læknis-, lyfja- og þjálfunarkostn- aður miðast við einstaklinga með sama fjölskyldunúmer, þ.e. einstakling, hjón eða sambýlis- fólk og börn þeirra undir 18 ára aldri. Miðað er við árstekjur árið áður en sótt er um endur- greiðslu. Eyðublaðið má finna undir krækjunni Umsóknareyðublöðá forsíðu og þá hlekknum Sjúkratryggingar. Athugið að þegar sækja þarf endurgreiðslur til Tryggingastofnunar er óþarfi að koma. Nóg er að senda allar kvittanir og hægt er að fá afsláttarkort send í pósti og endur- greiðslur greiddar á bankareikninga. Þess þarf að gæta að reikningar séu rétt útfylltir og að fram komi banki, reikningsnúmer og kennitala þess sem við greiðslunni tekur. Einnig er hægt að nýta sér umslög hraðþjónustu og sleppa allri bið í þjónustumiðstöð. Allar nánari upplýsingar fást í 3. kafla í handbók TR. Umboð sjúkratrygginga Vatnsnesvegi 33, Keflavík, sími 420 2400 Aalborg Portland gæðasement se kröfur san -segir Bjarni O B Eitt þeirra fyrirtækja sem hreiðrað hafa um sig í Helguvík er Aalborg Portland sem sérhæ- fir sig í innflutningi á dönsku sementi sem er meginstarfsemi fyrirtækisins, en þetta danska sement hefur að sögn reynst vel við íslenskar aðstæður. Faxi náði tali af Bjarna Ó. Halldórssyni sem segir að fyrirtækið dafni vel og hafi náð að festa rótum hér á svæðinu. Hann svaraði nokkrum spurningum okkar góðfúslega. Hvemig stóð á því að þið stofhuðuð þetta fyrirtœki? Nú, þess má geta hér í upphafi að sement frá Aalborg Portland er íslendingum að góðu kunnugt og var selt hér á íslandi allt frá aldamótunum 1900 til um það bil 1958 eða fram til þess að Sementsverksmiðjan var stofnuð uppi á Akranesi. Þegar svo kom að því að selja átti Sementsverksmiðjuna fyrir nokkr- um árum var Aalborg Portland boðið til viðræðna um hugsanleg kaup á Sementsverksmiðjunni. Af þessum kaupum varð ekki, en í ljósi þess að fyrirhugað var að selja Sementsverk- smiðjuna, sem og að á íslandi var álit- legur markaður fyrir sement, var ákveðið að hefjast handa og verða á undan öðrum erlendum aðilum til ís- lands. Og ekki spillti fyrir ákvörðuninni að margir meðal hinna eldri á íslandi höfðu mjög jákvæða reynslu af sementi frá Danmörku. En hvemig stóð á þvi að þið völduð Helguvik? Hafnaraðstaðan er frábær í Helguvík auk þess sem lóð var til staðar, sem gerði það mögulegt að hefjast handa við upp- byggingu. En einnig voru viðbrögð bæjaryfirvalda mjög jákvæð gagnvart okkar starfsemi og það hafði vitanlega sín áhrif. Hvað starfa margir hjá ykkur? í dag eru 8 starfsmenn fastráðnir, en á sumrin og fram á haust, erum við með um 10 starfsmenn. 42 FAXI

x

Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.