Faxi - 01.12.2004, Page 46
og sakleysisleg pæling unglingsins
eða videogláp með vinunum heldur
er þar afkimi hins harða heims mark-
aðshyggjunar þar sem allt er falt.
Nýr samskiptaheimur
Á netinu og í gegnum farsíma eða
SMS fara fram ýmis viðskipti sem
ekki eru við hæfi barna og þegar for-
eldrarnir loksins komast í málið er
það jafnvel of seint.
Unglingsstúlkur hitta bíræfna
menn sem þær hafa kynnst í gegnum
netið eins og dæmin sanna hérlendis
og fíkniefnin eru jafnvel seld og af-
hent eftir samskipti í farsímum barn-
anna, allt án vitundar foreldra. Ein-
elti og alls konar ófögnuður nær góðri
útbreiðslu í þessum nýja miðli sem
foreldrarar eru grandalausir fyrir og
hafa af góðum hug rétt börnunum
upp í hendurnar.
Það eru ekki nema nokkur ár síðan
fjölskyldan sat saman og horfði á
Hemma Gunn og fjölskyldan borðaði
jafnvel saman kvöldverð nokkrum
sinnum í viku og foreldrar gátu fylgst
með hvað börn borðuðu, hvenær þau
fóru að sofa og hverjir hringdu í ung-
linginn.
Mikið getur þetta verið öfugsnúið.
Nú þegar ábyrgð foreldra á börnunum
er til 18 ára aldurs og maður hélt það
væri til bóta þá virðist blasa við okk-
ur sú staðreynd að foreldrar sleppa
hendinni af börnum sínum miklu fyrr
og það er eins og sumum foreldrum sé
fyrirmunað að segja NEI. Hvað eru
foreldrar að hugsa þegar þeir benda
með vísifingri á skólana?
Unglingavernd
Hvar er unglingaverndin eða
tekur hún ekki við af barna-
verndinni? Hvað getum við gert
í þessu? Hvernig eiga börnin
okkar að læra um réttindi og
skyldur og hvernig læra þau
hvað má og hvað má ekki. Hvar
fer siðferðisumræðan fram og
hvernig verður það þjóðfélag
þar sem tengsl foreldra og bama
rofna jafnvel áður en börn kom-
ast á unglingsárin?
Svo virðist sem alls kyns rusl
og ófögnuður flæði óhindrað yfir
börn þessa lands á mestu mótun-
arárum þeirra og foreldar fórna
höndum og fara á námskeið um
sjálfstraust og sjálfsmynd ung-
linga sem virðist í mörgum til-
fellum ekki vera í neinu sam-
ræmi við þá mynd sem blasir við
í „sér aðstöðu" unglingsins þar
sem nokkuð ljóst er hvað ung-
lingurinn telur sig vilja en hitt
er svo annað mál hvað er gott
fyrir hann. Hvað er það sem get-
ur haft áhrif á val unga fólksins
sem í mörgum tilfellum er undir
áhrifum auglýsingamarkaðarins
hvað varðar allt það sem nauð-
synlegt er að eignast til að telj-
ast gjaldgengur.
Já miðar ekki allt uppeldi að
því að gera börnin sjálfstæðari
og hamingjusamari eða gefum
við óæskilegum áhrifavöldum
óhindraðan aðgang að ungviði
okkar á viðkæmasta skeiði þess.
Helga Margrét
Óskum öllum
Suðurnesjamönnum
gleðilegra jóla
og farsæls komandi árs,
með þökk fyrir það liðna.
VERKALÝÐS- OG
SJÓMANNAFÉLAG
KEFLAVÍKUR
s
Oskum öllum
Garðbúum og öðrum
Suðurnesj amönnum
gleðilegra jóla
og farsæls komandi árs,
með þökk fyrir samskiptin á liðnu ári
Hreppsnefnd
Gerðahrepps
46 FAXI