Frjáls verslun - 01.11.2003, Blaðsíða 6
RITSTJÓRNARGREIN
UM EINKENNI LEIÐTOGA
„Við gerðum þetta sjált!“
jóðin fagnar því 1. febrúar nk. að hundrað ár eru liðin
frá því að Hannes Hafstein varð fyrsti ráðherra íslend-
inga. Hann var skáld og hugsjónamaður og mikill leið-
togi. Hann átti sér þann draum að þjóðin gæti losnað af eigin
rammleik úr fátæktargildrunni. Ég hef stundum hugsað til
þess, þegar ég geng um miðborg Kaupmannahafnar og sé
hin reisulegu gömlu hús, gangstéttirnar og glæsibraginn,
þennan borgarbrag sem á sér yfir tvö hundruð ára sögu,
hvernig það hafi verið fyrir íslendinga á árum áður að búa í
heimsborginni við sundið við slíkan munað og snúa síðan
heim til Islands þar sem molbúahátturinn var
alger; fátækt, kofar, foraðsstígar og moldar-
kofar til sveita. Langaði þá nokkuð heim? Hvað
dró þá heim? En „römm er sú taug er rekka
dregur föðurtúna til“.
HANNES HAFSTEIN sneri heim og varð
fyrsti ráðherrann í hundrað ára sögu íslenskra
ráðherra. Þjóðin fékk sjálfstæði og hún hefur af
mikilli elju og dugnaði látið draum Hannesar
rætast á aðeins einni öld. Núna er þjóðin rík og
laus við þá minnimáttarkennd sem hefur
þjakað hana lengst af gagnvart útlendingum.
Ekki álasa ég þjóðinni fyrir að hafa farið hjá sér
við erlendar gestakomur fyrir hundrað árum. Stoltið var
samt aldrei frá henni tekið. Viljinn til að rísa úr öskustónni
var fyrir hendi. Eftir að þjóðin fékk fullt sjálfstæði árið 1944
hefur hagsaga hennar verið ævintýri líkust. Auðlegð hennar
hefur vaxið jafnt og þétt. Saga hennar á síðustu öld er frá
örbirgð til álna.
ÞAÐ HEFUR VERIÐ HAPP íslendinga að hafa átt
marga sterka leiðtoga í stjórnmálum og atvinnulífinu. Það
hefur líka skipt þjóðina miklu að eiga afreksmenn á sviði
íþrótta, vísinda, lista, bókmennta og athafnamennsku;
manna sem hafa borið hróðurinn víða. Einn slíkan leiðtoga
er Fijáls verslun að útnefna um þessi áramót sem mann
ársins í atvinnulífinu; Jón Helga Guðmundsson í Byko.
Þetta er sextánda árið í röð sem blaðið heiðrar athafnamenn
í íslensku atvinnulífi og er tilgangurinn að vekja athygli á því
sem vel er gert og að hvetja aðra til dáða í viðskiptum. Sú
saga, sem núna er skráð af íslenskum athafnamönnum, nær
langt út fyrir landsteinana. Við eigum athafnamenn sem láta
hvarvetna að sér kveða - öllum til hagsbóta. Þannig er Jón
Helgi ekki bara þekktur í Kópavoginum sem Jón í Byko
heldur er hann orðinn þekktur í Lettlandi þar sem hann
rekur tvær timburvinnslur, auk þess sem hann á stórt skóg-
lendi í Rússlandi. Þar nær hann m.a. í hráefnið, trjáboli sem
fara til Lettlands og eru síðan fluttir til íslands sem fullunnið
timbur.
EN HVAÐ EINKENNIR sterka leiðtoga? Svörin eru
mörg og oft ólík. Eflaust er ekki til ein formúla. En ég hef
alltaf haldið því fram að bjartsýni, eldmóður, staðfesta,
dugnaður, þor og þrautseigja séu eiginleikar leiðtoga. Leið-
togar treysta á sjálfa sig og þeir vilja vera í forystu. Margir
þeirra hafa lagt hart að sér sem ungir menn, kynnst mikilli
vinnu á æskuárum og ekki alist upp við
neinn lúxus. Leiðtogar verða aldrei
óumdeildir og þeir eru ekki fullkomnir
írekar en annað fólk. Þeir eru ekki skap-
lausir og eflaust finnst mörgum sem þeir
séu frekir. En það er eitthvað í farí þeirra
sem laðar fólk að þeim. Þeir njóta trausts
og trúar annarra. Þeir eru hreinir og
beinir og reyna ekki að vera aðrir en þeir
eru. Einhverra hluta vegna koma þeir sínu
fram - oft án hávaða og láta - og fólki líkar
vel að vinna fyrir þá eða fylkja sér undir
merki þeirra. Þeir hvetja og þeir eru bjart-
sýnir. Þeir sjá hálft glas af vatni sem hálffullt en ekki hálf-
tómt. Þeir sjá 3% atvinnuleysi sem 97% atvinnu. Þeir sjá
vandamál sem ögrandi verkefni en ekki sem heimsendi.
Mjög hefur verið klifað á því að mikill munur sé á stjórn-
anda og leiðtoga. Er þá sagt að leiðtogi geri réttu hlutina en
að stjórnandi geri hlutina rétt. Þetta hefur sömuleiðis verið
orðað þannig að leiðtogi komi fljótt auga á aðalatriðin og
haldi sig við þau, en festist ekki í smáatriðum.
I FRÆÐIBÓKUM um sljórnun er stundum vísað til
Lao-tse, kinverska heimspekingsins, sem uppi var sex
hundruð árum fyrir Krist og sagði: „Stjórnandi er bestur
þegar fólk verður ekki vart við hann.“ Ennfremur sagði hann
að það væri tákn um góða leiðtogahæfileika ef fólk segði
sigri hrósandi eftir að hafa náð markmiðum hans: „Við
gerðum þetta sjálf!“
ISLENDINGAR hafa risið upp úr öskustónni á hundrað
árum undir forystu margra sterkra leiðtoga í stjórnmálum,
atvinnulífi sem og á öðrum sviðum þjóðlífsins. Það fer vel á
því að þjóðin segi sigri hrósandi á þessum tímamótum: „Við
gerðum þetta sjálf!" S3
Jón G. Hauksson
Þeir hvetja og þeir
eru bjartsýnir. Þeir
sjá hálft glas af vatni
sem hálffiillt en ekki
hálftómt Þeir sjá 3%
atvinnuleysi sem 97%
atvinnu. Þeir sjá
vandamál sem
ögrandi verkefni en
ekki sem heimsendi.
6