Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.2003, Side 53

Frjáls verslun - 01.11.2003, Side 53
UM ÁRAMÓT Davíð Oddsson forsætisráðherra ræddi á Alþingi um ákefð bankanna sem flárfesta og sagði þá komna út á hála braut. Þar átti hann augljóslega við hvað þeir væru orðnir ákafir og hvassir ijárfestar og um leið ráðandi og drottnandi sem hluthafar í mörgum af stærstu fyrirtækjum landsins. Eftir á sagði hann að sér virtist sem mörgum hefðu þótt orð hans í tíma töluð. Fólk hefur líka spurt sig að því hvers vegna bankarnir láti ekki duga að lána athafnamönnum fé til að kaupa fyrirtæki í stað þess að þeir fara sjálfir inn í þau með gassagangi í nafni „umbreytinga"? Hreyfiaflið... Bankarnir hafa sjálfir skilgreint sig sem umbreytingaafl, hreyfiaflið í íslensku viðskiptalífi; aflið sem komi fyrirtækjum almennilega í gang og á skrið; aflið sem standi á bak við útrás íslenskra fyrirtækja. Þetta viðhorf kom einkar vel í ljós á morgunverðarfundi Verslunarráðs í haust þar sem Siguijón Þ. Arnason, bankastjóri Landsbankans, hafði framsögu ásamt Þórði Má Jóhannessyni, forstjóra Straums. I máli Siguijóns kom fram að bankarnir líta á það sem sögulegt hlutverk sitt að leiða umbreytingarferlið í atvinnulífinu. Hann sagði að löggjafinn gerði beinlinis ráð fyrir þessari þróun þar sem bankar væru bæði fjárfestinga- og viðskiptabankar og að hún væri í takt við það sem gerst hefði erlendis. Skömmu áður hafði Félag viðskipta- og hagfræðinga haldið fund um þessi mál og þar kom fram hjá Erlendi Magnússyni, framkvæmdastjóra alþjóðasviðs Islandsbanka, að hann teldi að bankarnir ættu aðeins að vera stefnuráðandi Jjárfestar í fjár- málafyrirtækjum, annað gæti leitt til hagsmunaárekstra. Jafet Olafsson, forstjóri Verðbréfastofunnar, sagði á þessum sama fundi að reynslan í Þýskalandi, þar sem bankarnir hefðu farið inn í fyrirtækjarekstur af miklu afli, væri slæm og að bankarnir væru núna á hraðri leið út úr þeim fyrirtækjum sem þeir gætu ekki selt. Vilhjálmur Bjarnason sagði á sama fundi að margumtalaðir Kínamúrar á milli einstakra deilda innan bankanna væru býsna þunnir og frekar í ætt við japönsk þil“. Kínamúrar eða „japönsh pil“? Flestir eru á því að hversu traustir sem Kínamúrarnir eru (gefum okkur að þeir séu það) þá muni ætíð gæta tortryggni um hversu vel þeir halda á meðan bankarnir eru bæði fjárfestinga- og viðskiptabankar og þjóna tveimur herrum samtímis. Hins vegar verður fróðlegt að sjá hvað taki við eftir að „umbreytingunum lýkur“ og hveijir kaupi fyrirtækin af bönkunum. „Nú get ég,“ var einhveiju sinni sagt. Verða það athafnamennirnir sem þá mega og geta? HD BANKARNIR • Fjárfestingabankar og viðskiptabankar. • Stærstu hluthafar í stærstu fyrirtækjunum. • Telja hlutverk sitt að „umbreyta" fyrirtækjum og vera hreyfiaflið í viðskiptalífinu og útrás íslenskra fyrirtækja. • Er traustið farið? Þora forstjórar ekki lengur að segja frá áætlunum sínum? • Eiga bankar að láta það duga að lána athafnamönnum til að kaupa í fyrirtækjum? KINAMÚRAR - TIL UMHUGSUNAR • Gengur það upp að viðskiptabanki fyrirtækis A, sem býr yfir öllum upplýsingum og áætlunum þess og hefur lánað því stórfé, taki sig til og verði stærsti eigandi B, helsta samkeppnisfyrirtækis A? • Geta bankar verið með ráðgjöf um hlutabréfakaup (greiningardeildirnar) þegar þeir eiga sjálfir í mörgum fyrirtækjum á markaði, eða eiga mikið undir í sumum þeirra vegna lánsviðskipta? • Getur verið að í einu herbergi banka sé unnið að fjár- mögnun á kaupum einhvers tjárfestis á fyrirtæki og í næsta herbergi sé unnið að kaupum einhvers annars á sama fyrirtæki? Bankastjórar Landsbankans, Sigurjón Árnason og Halldór Jón Kristjánsson, greina frá uppstokkuninni á Eimskipafélaginu á milli Landsbankans og íslandsbanka. 53

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.