Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.2003, Side 67

Frjáls verslun - 01.11.2003, Side 67
Sérsviðshóparnir drífa faglega starfið innan skrif- stofunnar áfram og eru ábyrgir fyrir því að alltaf séu til staðar nýjustu upp- lýsingar á hverju sviði. Pá búa hóparnir til og upp- færa skjöl sem algengt er að nýtist viðskiptavinum. „í hverjum þjónustuhópi er verkstjóri og framkvæmdastjóri LOGOS situr fundi allra hópanna til að samræma starfið innan stof- unnar," segir Sigríður Þorgeirsdóttir, skrifstofu- og starfsmannastjóri LOGOS. „Hér er einnig 24 tíma vakt ef svo má segja. Hugmyndin er að viðskiptavinir skrifstofunnar geti gengið að þjónustu hvenær sem þeir þarfnast hennar." í húsinu er einnig einkaleyfa- og vöru- merkjastofan A&P Árnason. „Það styrkir okkur mjög á hugverkaréttarsviði að hafa A&P Árna- son innandyra," segir Sigríður. „Þetta er 10 manna fyrirtæki og þar sem þarna er fólk með mjög fjölbreytta menntun, verður úr þessu skemmtileg flóra mannlegra sam- skipta. Hér er gott starfsumhverfi og góður starfsandi. Við leggjum mikið upp úr því að starfsfólk eigi sér líf utan vinnu og það er gaman að geta þess að á síðasta ári voru 9 starfsmenn f fæðingarorlofi, bæði karlar og konur." Gunnar Sturluson, hrl., fag- Sigríður Þorgeirsdóttir, legur framkvæmdastjóri skrifstofu- og starfsmanna- LOGOS. stjóri LOGOS. LOGOS hefur fengist við mörg stór verk- efni en eitt hið stærsta var í tengslum við Smáralind. „Við fylgdum Smáralind eftir allt frá því að hún var aðeins hugmynd í möppu og á meðan á byggingu hússins stóð var fulltrúi okkar á staðnum í nokkra mánuði. Þetta var gríðarlega spennandi verkefni. Núna erum við með nokkur stór verkefni í vinnslu, m.a. vegna fjárfestinga íslenskra fyrirtækja í útlöndum." Á síðustu tveimur árum hefur samkeppnis- rétturinn verið fyrirferðamestur hjá okkur, en nú virðist sem áherslan sé að færast meira yfir á kauphallarréttinn. Starfandi sersi/iðshópar LOGOS Almenn Idgfræði, EES-réttur Félagaréttur, fjármagnsmarkaðir Flutningaréttur, fs/ó- og flugrétturj Kröfu- og eignarréttur IMalflutningur og réttarfar Shaðabóta- o9 vðtryggj^aréttw Stjórnsýsluréttur Verktakaréttur, útboð og opinber innkaup Vinnuréttur Alþjóðleg samtök LOGOS er aðili að alþjóðlegum samtökum, Lex Mundi og TerraLex, og er eina stofan hér á landi sem er aðili að þessum tveim sam- tökum sem leggja áherslu á að hafa aðeins framúrskarandi lög- fræðistofur innan sinna raða. „Hagur viðskiptavina okkar af þessu samstarfi felst fyrst og fremst í aðgangi að fyrsta flokks þjónustu um allan heim," segir Gunnar. „Við getum sent mál til útlanda og verið viss um að góðar stofur taka við þeim. Það er valið í þessi samtök og þvi ákveðið gæðamerki að vera innan þeirra og óneitanlega myndast góð persónuleg tengsl á milli aðila innan samtakanna því þeir hittast reglulega á fundum." ( krafti stærðarinnar getur LOGOS verið með öflugan búnað, gott bókasafn og tölvuupplýsingakerfi sem starfsmenn geta notað hvar í heiminum sem þeir eru staddir. Tengingin við Lex Mundi og TerraLex býður svo frekari hagræðingu og auknar leiðir til upplýs- ingaöflunar og þjálfunar starfsmanna. Menntun „Innan LOGOS er lögð áhersla á menntun og þá ekki síst endurmenntun starfsmanna sem fara á námskeið innan lands og utan til að halda þekkingu sinni við. Þar fyrir utan heldur LOGOS gjarnan námskeið og ráð- stefnur um lögfræðileg efni s.s. samkeppnisrétt, útboðsmál og kaup- hallarrétt, og hefur það mælst vel fyrir," segir Sigríður. Hvað framtíðina varðar segir Gunnar myndina vera skýra. „Mál málanna nú er gæðastarf og við erum að skipuleggja vinnu okkar þannig að hún sé unnin eftir skil- greindum ferlum eftir því sem við verður komið. Við getum þannig haft eftirlit með því að sú þjónusta, sem við veitum viðskipta- vinum okkar, sé ávallt sú besta sem völ er á.“ ffij LOGOS LÖGMANNSÞJÓNUSTA s í ð a n 19 0 7 Efstaleiti 5 • 103 Reykjavík Sími 5 400 300 • Bréfasími 5 400 301 KYNNING 67

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.