Ármann - 01.11.1938, Blaðsíða 20

Ármann - 01.11.1938, Blaðsíða 20
14 A R M A N N Svípjóðarför Ármanns 1932. Dagana 14.—20. sept. 1932 gekst Norrænafélagiö fyrir því, að haldin yrði „íslenzk vika“ í Stokk- hólmi. NorrænafélagiS er til orSiS, eins og kunn- ugt er, meS þaS markmiS, aS efla og auka kynn- ingu NorSurlanda sín á milli. ÁSur hafSi veriS haldin „Dönsk vika“, „Norsk vika“ o. s. frv. Á þessar „vikur“ sendir hlutaSeigandi þjóS marga af sínum bestu mönnum, sem koma þar fram sem full- trúar þjóSarinnar og til ]>ess aS kynna hana. NorrænafélagiS skrifaSi Glimufél. Ármann og spurSi, hvort þaS vildi senda leikfimis- og glímu- flokk á þessa „viku“ og koma þar fram sem full- trúar þjóSarinnar í líkamsment, og jafnframt aS sýna í 8 borgum viSsvegar um SvíþjóS. Þessu boSi var tekiS og undirbúningur hafinn. Þann 7. sept. kl. 8 e. h. var svo lagt af staS meS e.s. Gullfossi á- leiSijj til Stockholms yfir Kaupmannahöfn. Mikill mannfjöldi var saman kominn á hafnarbakkanum, þegar Gullfoss lagSi frá landi og kváSu viS húrra- hrópin og árnaSaróskirnar. Allir vorum viS gripnir af einhverri gleSikend og fundum lítt, þótt viS vær- um aS kveSja vini og ættingja og leggja á hinn langa veg, sem er á milli íslands og meginlandsins. SíSustu kveSjurnar hljómuSu til okkar úr kapp- róSrarbátnum Grettir, sem róiS var knálega af ræð- urum félagsins, og fylgdu þeir okkur út aS Akur- ey. Um kvöldið gengum viS snemma til hvílu því flokkurinn var þreyttur eftir erfiSi síSustu daga. Snemma næsta morgun vorum viS í Vestmanna- eyjum, en fáir fóru í land; aSeins þeir sem meS eftirvæntingarhreim í röddinni höfSu spurt hve lengi yrSi staðiS viS í Eyjum, og var svariS lítiS Svíþjóðarfarar Ármanns. TaliS frá vinstri. Standandi: Karl Gíslason, Gísli SipurSsson, SigurSur NorSdahl, Dagbjartur Bjarnason, Ágúst Kristjánsson, Þorsteinn Einarsson, Jens Guðbjörnsson (form.), Jörgen Þorbergsson, Georg Þorteins- son, Jóhannes EiSsson, Geir Ólafsson. Sitjandi: Þórir Björnsson, Ragnar Kristinsson, Jón Þorsteinsson, kenn- ari og stjórnandi flokksins, Höskxildur Steinsson og Páll Hallgrímsson.

x

Ármann

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ármann
https://timarit.is/publication/692

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.