Ármann - 01.11.1938, Blaðsíða 25

Ármann - 01.11.1938, Blaðsíða 25
Á R M A N N Nýja bátaskýlið. Oft hefir veriö rætt og ritaö um aöbúnaö þann, sem ræöarar félagsins hafa átt við aö búa. Meðan hiö gamla bátaskýli félagsins, sem stóð vestast við Reykjavíkurhöfn, var við líði, lék ham- ingjan við róörarflokkinn, en þegar félaginu var skipað að hverfa á braut með það, breyttist aðstað- an til hins verra, og nú um margra ára skeið hafa ræðarar hvergi átt vísan samastað með bátana, en hröklast með þá stað úr stað. Ýmsir ágætismenn hafa reynst hinar mestur hjálparhellur og hafa þeir skotið skjólshúsi yfir bátana um lengri og skemri tíma. svo að róðrarflokkurinn hefir beinlínis lifað á góðsemi þeirra. Glímufélagið Ármann á tvo báta. sem nú eru raunar orðnir gamlir. en hafa þó elst mjög fyrir timann vegna þeirrar geymslu, sem þeir hafa oft veriö i undanfarið, svo sem í saltgeymslum og öðr- um slikum húsum, þar sem loftið hefir farið mjög illa með þá. Með góðu bátaskýli ávinst því þrent: fyrst og fremst fæst fastur samastaður, í öðru lagi endast bátarnir mjklum mun betur en ella, og i þriðja lagi verður hægt að stunda æfingar alt frá vori til hausts. Þörfin á húsi hefir verið alveg knýjandi, en vegna fjárhagsörðugleika hefir félagið ekki treyst sér til svo stórra framkvæmda fyr en nú á síðastliðnu vori, að hafist var handa með bygginguna. Byrjað var á undirbúningi verksins snemma i sumar. Reykjavíkurbær lét af hendi lóð viö Foss- voginn, rétt austan við Nauthólsvilc, en þar er hugmyndin að framtíðarbaðstaður Reykvíkinga verði, og að íþróttasvæðið, leikvellir, knattspyrnu- vellir o. fl. verði þar norður af. í nágrenni Reykja- víkur eru hv^rgi betri skilyrði til róðraræfinga en við Fossvoginn. Ýmsir fleiri staðir komu að vísu til greina, en valið féll, að öllu at'huguðu, á þennan. Grunnur skýlisins er að stærð 8x15 m. úr járn- bentri steinsteypu, og er áætlað að það taki 10—12 báta af sömu stærð og þá báta, sem Ármann á nú. Möl og sandur hefir verið flutt að, en það hefir oft verið býsna erfitt, þar sem ekki var hægt aö flytja eftir landleiðinni, heldur urðu allir aðflutn-

x

Ármann

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ármann
https://timarit.is/publication/692

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.