Morgunn - 01.12.1964, Blaðsíða 8
86
MORGUNN
þau með skynfærunum, eins og hverja aðra hluti, og
horfa á þau margir í senn og skynja þau samtímis og á
sama veg. Það dulræna við þessi fyrirbæri er það, að þau
virðast ekki gerast í samræmi við þau lögmál, sem við
þekkjum eða skiljum. Venjulegir hlutir taka að hreyfast.
og færast úr stað, án þess að nokkur sýnileg hönd snei’ti
við þeim, eða nokkur sá kraftur vei’ki á þá, sem okkur
ei’u kunnir. Fyrirbæri þessarar tegundar eru algeng í sam-
bandi við suma miðla. Og hef ég fengið tækifæri til þess
að sjá þau gerast á miðilsfundum hvað eftir annað. Stund-
um byrja þessar hreyfingar hluta skyndilega í einstökum
húsum eða heimilum og haldast þar um lengri eða skemmri
tíma. Sem dæmi um slíkt hér á landi má nefna undrin
í Hvammi í Þistilfirði 1914 og atburðina að Saurum á
Skaga nú fyrir skemmstu. Oft virðist slikur ókyrrleiki
standa í sambandi við einhvern af heimilisfólkinu og
hverfa um leið og hann víkur þaðan burtu, enda þótt ör-
uggt sé, að hann sé á engan hátt viljandi valdur að því,
sem gerðist.
8. Líkamningafyrirbœri (materialisations) gerast aðal-
lega í sambandi við miðla og þó ekki nema með tiltölu-
lega fáum þeirra. Þegar slíkur miðill er fallinn í miðils-
svefn, tekur hvítleitt efni að streyma út frá höfði hans
og einkum úr eyi’um, nefi og munni. Þetta efni tekur síð-
an á sig mannsgervi og stundum svo skýrt, að vel má
greina eðiilegan hörundslit og jafnvel hár og skegg. Þess-
ar verur, sem venjulega eru hjúpaðar hvítum slæðum,
svífa um meðal fundargesta, stundum fleiri en ein í senn.
Hefur margoft tekizt að ná af þeim ljósmyndum, og ýms-
ir hafa fengið að þreifa á þeim með varúð.
Spiritismi skilgreindur.
Ég hef talið óhjákvæmilegt að drepa hér lauslega á
helztu tegundir dulrænna fyrirbæra, vegna þess að spirit-
isminn í núverandi merkingu þess orðs er nátengdur þess-