Morgunn - 01.12.1964, Side 6
84
MORGUNN
háttar, sem ekki eiga sér eðlilegar orsakir. Skylt þessu er
og það, er menn skyndilega finna sterkan ilm eða þragð,
án þess að unnt sé að gera grein fyrir, frá hverju það
stafar.
3. Fjarhrif (telepathy) er einu nafni nefnd margs kon-
ar áhrif, sem til manna berast úr svo mikilli fjarlægð, að
útilokað er, að þau berist skynfæraleiðina. Ein tegund
fjarhrifa er hugsanaflutningur, þegar hugsun berst frá
einum hug til annars oft um órafjarlægðir. Önnur er fjar-
skyggni eða fjarheyrnir, er menn sjá og heyra atburði,
sem eru að gerast langt í burtu. Þriðja tegundin er for-
vitrun (præcognition), er menn vita og segja fyrir óorðna
hluti.
Fjarhrifin, sem oft eru nefnd ESP fyrirbæri (extra
sensory perception), hafa verið afar mikið rannsökuð á
síðustu áratugum. Við þær rannsóknir hafa fengizt ýms-
ir heimskunnir vísindamenn og má meðal þeirra einkum
nefna dr. J. B. Rhine við Duke-háskólann í Ameríku og
dr. Soal í Englandi. Tilraunir dr. Rhine hafa verið sér-
staklega yfirgripsmiklar og ýtarlegar og hafa þegar leitt
til þess, að það er talið með öilu vísindalega sannað, að
ESP fyrirbæri eða skynjanir án venjulegrar hjálpar skyn-
færanna eigi sér stað á ýmsum og raunar alveg ótrúleg-
um sviðum. Væri freistandi að lýsa þessum rannsóknum
nánar, en það mundi lengja mál mitt um of. Rétt er þó
að geta þess, að fjarhrifin virðast vera miklum takmörk-
unum og erfiðleikum bundin. 1 fari sumra manna sýnast
þau naumast merkjanleg. En hjá öðrum sýna líkindaút-
reikningar ótvírætt, að þau eiga sér stað í ríkum mæli.
4. Hlntskyggni (psychometry) er sá hæfileiki nefndur,
er menn geta sagt sögu hiutar, sem þeim er fenginn í
hendur, iýst eiganda hlutarins og þeim liðnu atvikum, sem
hlutnum eru tengdir, og oft með stórfurðulegri nákvæmni.
Er þá venjulega sá, sem hlutinn handleikur, í léttum mið-
ilssvefni, eða hálftrance, sem kallað er. Svipað þessu er
það, þegar spákonur lesa fortíð manna í kristallskúlu,