Morgunn


Morgunn - 01.06.1968, Síða 14

Morgunn - 01.06.1968, Síða 14
8 MORGUNN eilífa líf vex og þroskast mitt í hverfleika tímans. Og þetta er það, sem Páll á við, er hann segir, að þrenging vor skamm- vinn afli oss yfirgnæfanlegs dýrðarþunga! Til þess líður tím- inn og með því einu móti hefur tíminn þýðingu, að þroska vorum miði áfram. Eitt af hugljúfustu skáldum vorum, sálarrannsóknamað- urinn Einar H. Kvaran, kemst þannig að orði í einu af kvæð- um sínum, að okkar „jarðlífssvið sé útborg ein af Drottins dýrðarhöllum.“ Og í hinum undurfagra sálmi: „Þín náðin, Drottinn, nóg mér er,“ kemur í ljós fögnuður þess manns, sem öðlazt hefur staðfasta sannfæringu fyrir því, að lífið haldi áfram í hækkandi veldi, þrátt fyrir hel og gröf. — Framlífið. Vísindin hafa enn ekki ráðið þá gátu til fulls, hvernig framlifinu er háttað. Sumir trúa því, að næsta tilvera sé í annars konar efnis- heimi en vorum, þar sem flest sé þó áþekkt því, er vér þekkj- um hér og hafi jafnmikinn veruleik, en gerist aðeins í fín- gervara efni. Aðrir telja, og sú trú hefur verið afar útbreidd frá fornu fari, að menn endurfæðist á jörðina æ ofan i æ. Þetta er t. d. eitt aðalatriðið í indverskum trúarbrögðum og virðist jafn- vel hafa þekkzt í frumkristni og ekki hafa verið ókunnug hugmynd í átrúnaði forfeðra vorra. Er talað um það i Helga- kviðum báðum í Sæmundar-Eddu, að þeir nafnar og ást- meyjar þeirra væri endurbornir, og hafa menn þá trúað, að örlagaböndin tengdu menn saman líf eftir líf. Þess ber þó að gæta, að þeir, sem aðhyllast þessa trú, gera ekki ráð fyrir, að menn endurfæðist á jörðina nema með löngu millibili, eftir að menn taka að ná einhverjum þroska, en þess á milli dveljist menn í annars konar veröldum, stund- um svo skiptir hundruðum ára. Þannig verður það reyndar allt önnur veröld, sem þeir fæðast til, er þeir koma aftur til jarðarinnar til að afla sér meiri lífsreynslu og þjálfunar.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Morgunn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.