Morgunn - 01.06.1968, Blaðsíða 83
MORGUNN
77
afsökun fyrir því, að bera ómeti á borð fyrir heila þjóð, að
hún sé sjálfráð að því, hvort hún etur það eða ekki, né held-
ur er það nægileg afsökun fyrir kaupmann, sem býður
skemmda og lélega vöru, að menn séu sjálfráðir að því, hvort
Þeir kaupa hana.
En hvað sem þessu líður, fagna ég hinum vaxandi áhuga
á sálarrannsóknunum. Það er mér vottur þess, að þjóðin er
ekki hætt að hugsa og metur enn andann meira en efnið. —
Draumar o >• * þessari bók segir hinn aldni sægarpur Ei-
, a.r ríkur Kristófersson frá dulrænni reynslu
sinm, og er þar margt harla athyglisvert.
Hafa og sumar vitranir hans beinlínis leitt til þess, að hon-
um tókst að bjarga mönnum á sjó úr yfirvofandi háska.
Hann kveðst hafa farið á miðilsfund í fyrsta skipti árið
1923 hjá Andrési Böðvarssyni, og fremur af forvitni en af
Því, að hann þá væri trúaður á þessi mál. Vildi þó ekki for-
úæma neitt að óreyndu. Um þennan fund segir hann:
» ■ ■. Ég varð ekki fyrir gabbi, og þetta vakti fróðleiks-
fýsn mína, mig langaði til að fræðast meira um dulrænu
sviðin. Það hafði ýmislegt borið fyrir mig frá barnæsku,
sem torvelt var að skýra frá hversdagslegum viðhorfum; en
eg setti þetta sérstaklega í samband við annað líf eða fram-
haldslíf manna. Hins vegar varð mér snemma Ijóst, að til var
einhver annar heimur en sá, sem við lifðum í, einhver ósýni-
leg veröld, sem við komumst í snertingu við undir vissum
kringumstæðum. Mér var það einnig Ijóst, að undir fæstum
tilfellum áttum við þess kost að eigin frumkvæði að kalla
þessi öfl eða þessar ósýnilegu verur í samband við okkur.
Hin ósýnilegu öfl gripu inn í líf okkar mannanna, þegar
rninnst varði. Og ég hafði reynslu af því, að þau gerðu það
alltaf í þjónustu hins góða, þau gripu inn í umhverfi okkar
til aðvörunar við hættum, til hjálpar á örlagastundu eða
bentu mönnum út úr ógöngum."
Þessi eru orð hins gætna skipherra, sem kaus að kynna
sér þessi mál, en vildi ekki fordæma þau að óreyndu. Sú