Morgunn - 01.06.1968, Blaðsíða 32
26
MORGUNN
arrar reynslu, því nú ráðlagði annar læknir honum að róa
taugar sínar með hóflegri neyzlu annars bölvalds — áfengis.
Og í tuttugu ár reyndi Ford að sigrast á taugaveiklun
sinni með aðstoð áfengisins. Eins og þeir kannast við, sem
reynslu hafa af vandamálum áfengisneyzlu, þá fannst Ford
framan af að hann hefði vald á áfenginu og tækist jafnvel
stundum betur en oft áður, því hann hélt áfram fyrirlestra-
ferðalögum víðsvegar um heim, eins og áður. En það fór
að koma oftar og oftar fyrir, að hann var óvinnufær dög-
um saman. Og þannig hallaði undan fæti smám saman.
Stundum leitaði Ford lækna og var þá á köflum allvongóð-
ur um bata, en hann komst, eins og fleiri, að raun um, að
læknar kunna ekki ráð við ofdrykkju. Það er að vísu unnt
að halda drykkjusjúklingi frá drykkju um stundarsakir, en
hitt er þrautin þyngri, að gera hann að algjörum reglu-
manni. f þeim efnum hefur bæði trúarbrögðunum og lækn-
islistinni brugðizt bogalistin að mestu leyti. Það kom í hlut
félagsskapar ofdrykkjumannanna sjálfra, að varpa Ijósi
yfir þetta aldagamla vandamál. 1 þessum vandræðum kom
þekkingin á sálrænum efnum Ford að engu haldi. Það fór
að koma að því, að hann varð að leggjast inn á sjúkrahús
hvað eftir annað vegna ýmis konar lasleika, sem áttu rætur
sínar að rekja til ofneyzlu áfengis. Og hann varð einnig
hvað eftir annað að láta aflýsa fyrirlestrum eða fara upp í
ræðustólinn meira eða minna kenndur. Og hann fór að týna
tímanum. Við skulum nú láta Ford sjálfan segja frá einu
slíku tilviki, sem varð áhrifaríkt fyrir hann.
„Og svo kemur það fyrir einn morguninn, að ég vakna
við það, að ég er kominn til Florida, án þess að muna nokk-
urn skapaðan hlut eftir því hvenær ég hefði farið að heiman
frá mér í Kaliforníu. Ég leitaði uppi lestarstjórann, sem
sagði mér, að alla leið um þvera álfuna hefði ég ekki vikið
úr klefa mínum, látið færa mér þangað mat við og við, verið
mjög drukkinn alla leið, en þó rólegur, og að því er virtist
sinnulítill. Ég lét konu mína vita, hvar ég var niður kominn,
en hún svaraði og sagðist vera að sækja um skilnað og verða