Morgunn - 01.06.1968, Qupperneq 40
34
MORGUNN
hennar öðrum þræði harmafregn. Svo mikils virði var hún
sem kona eiginmanni sínum og sem móðir börnum sínum,
og sem vinkona vinum. ^
Frú Guðrún var fædd 17.maí árið 1900 og ólst upp í
Hellnatúni í Ásahreppi hjá foreldrum sínum. Faðir henn-
ar og móðir voru af sterkum stofnum komin þar eystra og
óvenju sterk og hraust bæði á líkama og sál. Komst móðir
hennar mikið á tíræðisaldur og faðir hennar á hundrað-
asta aldursár.
Skömmu eftir fermingaraldur varð Guðrún fyrir þeim
erfiðu örlögum að fá lömunarveiki, sem læknar réðu þá
ekki við að nokkru marki. Lækninga var leitað með litlum
árangri. Við mjög takmarkaða líkamsorku varð hún að búa
eftir það, orku, sem mjög fór dvínandi síðari árin.
Þessari reynslu tók frú Guðrún af miklum manndómi, og
tvitug giftist hún Sveinbirni Friðfinnssyni, sem reyndist ■'
henni mikill og góður vinur. 1 farsælu hjónabandi varð frú
Guðrún hamingjusöm móðir þriggja barna.
Lengst bjuggu þau hjónin í Reykjavík, en nýgift um nokk-
urra ára skeið í Vestmannaeyjum. Húsið, sem þau bjuggu í
þar, nefndist ,,Berjanes“, og við það var frú Guðrún jafnan
kennd síðan, þótt henni sjálfri væri ekki mikið um það gefið.
En í því húsi bjó hún, þegar miðilsgáfa hennar varð almenn-
ingi fyrst kunn, og mun það hafa ráðið því, að síðan var
nafn þessa húss bundið nafni hennar.
Þrátt fyrir þann fjötur, sem frú Guðrúnu var ungri felld-
ur, svo hún varð að mestu bundin við stólinn, sem hún sat í,
var hún að flestu öðru hamingjukona. Og það fyrst og
fremst af því, hve vel hún var gerð.
Hún var vel greind kona og skemmtileg í viðræðum. Hún
var ágæt húsfreyja. Og þegar þess er gætt, hve afar tak-
mörkuð líkamsorka hennar var, er aðdáunarvert, hverju
hún fékk áorkað, og hve vel hún bjó heimili sitt, bæði gest-