Útvarpstíðindi - 08.03.1943, Blaðsíða 3

Útvarpstíðindi - 08.03.1943, Blaðsíða 3
Olafur Jóh, Sígurdsson RITHÖFUNDUR les 24. niars upp nýja smásögu er hann nefnir „Musteri Salómons" Ólafur Jóhann Sigurðsson getur bráðum haldið hátíðlegt tíu ára rit- höfundarafmæli sitt og hefur þó ekki enn fyllt aldarfjórðung að áratölu. Ólafur er bóndasonur frá Torfa- stöðum í Grafningi, og Ingólfsfjall og Álftavatn höfðu þau áhrif á hann í barnæsku, að hann tók sig 'upp 14 ára að aldri og hélt með áætlunarbílnum til Reykjavíkur, staðráðinn í því að verða rithöfundur. En það er ekki nóg að segja það við sína höfuðborg, að maður ætli að verða rithöfundur. Hún vísaði hin- um unga manni upp að Álafossi og sagði honum að gæta spunavéla. Það vann hann sér til matar og skjól- klæða. En það reyndist erfitt að vera skáld við spunavélina á Álafossi og Ólafur flýði enn á náðir höfuðborg- arinnar hálfum fingri fátækari en er frá var horfið hið fyrra sinn. Seldi hann nokkru síðar Ólafi Erlingssyni handrit að bók sinni „Við Álftavatn“ og kom „með hönd undir kinn“ í dag- blöðum og öðrum merkisritum og var hvarvetna vel tekið. Þetta var haust- ið 1934. — Ári seinna kom „Um sumarkvöld“. Síðan hafa kom- ið út tvær skáldsögur eftir Ólaf, „Skuggarnir af bænum“ 1936 og „Liggur vegurinn þangað?“ 1940, og nú fyrir jólin kom smásagnasafnið „Kvistir í altarinu11. Auk þessa fjöldi af kvæðum og smásögum í blöðum og tímaritum. Hér skal ekki lagður dómur á rit- höfundarferil Ólafs — þó freistandi væri að hrekja eitthvað af þeim ó- hróðri og skilningslausu skrifum, sem jafnvel einn af bókmenntaheiðurs- prófessorum og rithöfundum lands- ins hefur látið sér sæma að taka álit- legan þátt í, heldur skal það eitt sagt, að það er skoðun mín, að sjaldan hafi rithöfundarefni sýnt ótvíræðari hæfi- leika en Ólafur Jóhann Sigurðsson, né tekið köllun sína alvarlegar en hann. Við Ólafur erum á líkum aldri og höfum verið kunningjar frá því að fundum okkar bar fyrst saman í Al- þýðubókasafninu í Reykjavík haustið 1935. Árin hin næstu á eftir vaf það ekki öfundsvert hlutskipti að vera ungur maður í Reykjavík, og bætti lítið fyrir að vera að fást við skáld- skap. Þá voru 10 krónur stórfé og ÚTVARPSTÍÐINDI 191

x

Útvarpstíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.