Útvarpstíðindi - 08.03.1943, Blaðsíða 14
ATKVÆÐAGREIÐSLAN:
Áhyggjur o$
ábyrgd
Bréj frá útvarpsráði.
Útvarpsráð óskar, að sá misskiln-
ingur verði leiðréttur í Útvarpstíð-
indum, sem það telur mjög hafa kom
ið fram í blöðum og bréfum til út-
varpsins, að atkvæðagreiðsla Útvarps
tíðinda um útvarpsefni hafi að ein-
hverju leyti verið á vegum útvarps-
ráðs eða útvarpsins. Skal það því enn
tekið fram, að atkvæðagreiðslan og
skýrslan um hana er á ábyrgð Út-
varpstíðinda einna.
Svar ritstjóra.
Jafnframt því, er við birtum ofan-
ritað bréf, viljum við þakka útvarps-
ráði, og þá einkum formanni þess,
fyrir ýmiskonar velvild í garð blaðs-
ins og lesenda þess. Skal sérstaklega
þökkuð sú liðvikni að láta blaðinu í
té hálfsmánaðar dagskrá. Hinsvegar
er okkur einnig ljúft og skylt að
benda háttvirtum formanni á smá-
veilur í framkomu hans gagnvart
blaðinu. Það hefur sem sé borið við,
að málflutningur hans um atkvæða-
greiðsluna og Útvarpstíðindi, hefur
verið mjög villandi og sums staðar
er hreinlega farið með rangt mál.
Hann hefur skrifað nokkrar klausur
1 Tímann, þar sem hann ræðir þessi
mál, að því er virðist 1 þeim tilgangi
að draga upp skopmynd af atkvæða-
greiðslunni og áliti fólksins. Þá hefur
hann, oftar en við höfum fært tölu á,
neitað að bera „ábyrgð“ á atkvæða-
greiðslunni- og skýrslunni um hana.
Ásökunum og ábyrgðarumkvörtun-
um formannsins skal hér með svarað
í eitt skipti fyrir öll:
Við höfum aldrei beðið formann út-
varpsráðs eða útvarpsráð í heild,
hvorki bréflega né munnlega, um
neina ábyrgð á atkvæðagreiðslunni
eða úrslitum hennar. Hitt er rétt, að
við sýndum formanni atkvæðaseðil-
inn og buðum honum að ræða fyrir-
komulag atkvæðagreiðslunnar eða
gera breytingartillögur við hana. For-
maður vildi ekki sinna slíku og mælti
á þá leið, að ekki þyrfti að láta skjal-
festa með atkvæðagreiðslu vinsældir
harmonikunnar. Þegar telja skyldi at-
kvæði var formanni útvarpsráðs og
útvarpsstjóra boðið að eiga fulltrúa
við talningu atkvæða, og þar með
eiga sinn þátt í ákvörðunum varðandi
birtingu atkvæða. Formaður vildi enn
í engu sinna þessu. Aftur á móti skip-
aði útvarpsstjóri fulltrúa fyrir sína
hönd. Þegar atkvæði voru birt, kom
í ljós, að formaður útvarpsráðs var
manna viðkvæmastur fyrir úrslitun-
um og gagnrýnir þau ómilt. Telur
hann, að nóg hefði verið að „birta
t. d. 10—12 nöfn, sem flest atkvæði
féllu á“. Verður honum einkum tíð-
rætt um þau 27 atkvæði, er féllu á
látna rithöfunda, af 1856 rithöfunda-
atkvæðum, sem alls voru greidd, og
það, að birt voru nöfn allra, er at-
kvæði hlutu. Þessum atriðum höfum
við þegar svarað í næst síðasta hefti.
En ekki minnist formaður einu orði á
það, sem í rauninni er athyglisverðast
við úrslit atkvæðagreiðslunnar, en
það er dómur fólksins um einstaka
dagskrárliði og útvarpsstarfsemina 1
202
ÚTVARPSTÍÐINDI.