Starfsmannablað Reykjavíkur - 01.12.1939, Qupperneq 10

Starfsmannablað Reykjavíkur  - 01.12.1939, Qupperneq 10
62 STARFSMANNABLAÐ REYKJAVlKUR Upp úr Núpsvötnum blómkál og tómata til viðbótar nesti okkar. Áfram ókum við yfir Ölfusá, Plóann, Þjórsá, Holtin, Rangárvellina, Hvolhreppinn, yfir Þverá hjá Hemlu og Vorsabæ, þar sem Höskuldur Hvítanes- goði bjó, yfir Landeyjar og Markar- fljót að Hamragörðum, sem er yndislegt bæjarstæði og í hömrunum fyrir ofan bæinn eru tveir fossar, Seljalandsfoss, sem steypist fram af hamrabrúninni eins og fíngerð silkislæða og Gljúfrabúi, sem er hálffalinn í hömrunum og sem listaskáldið okkar góða orti um „Gljúfrabúi, gamli foss, gilið mitt í klettaþröngum' ‘. Á þessum gullfallega stað borðuðum við morgunmat, því það er um að gera að velja sér fallega staði, þar sem áð er. Aftur er ekið af stað og urðum við að flýta okkur, því við höfðum ráðgert að fara austur á Síðu um kvöldið. Það er dásamlegt að sjá Eyjafjöllin í sól og sumri. Þegar við komum að Skógaá virtist hún vera nokkuð vatnsmikil, en bílstjórinn okkar og bíllinn voru báðir ágætir og komumst við heilu og höldnu yfir hana, I Skógaá eru marg- ir fossar, en af veg- inum sést aðeins Skógafoss og er hann mjög fallegur og til- komumikill. Áfram förum við yfir Skóga- sand að Jökulsá á Sólheimasandi (Fúla- læk), og eru það munnmælasögur, að Þrasi í Skógum og Loðmundur í Sól- heimum, sem báðir voru fjölkunnugir hafi veitt vatni á graslendi hvor hjá öðrum, því hvorugur vildi að áin rynni í þeirra landi og með- an þeir voru að þessum leik á Loð- mundur að hafa setið í Loðmundarsæti, en Þrasi í Þrasasæti við Skógarheiði vestan Jökulsár, þar til þeir fundust við gljúfur nokkur, þá sættust þeir á það, að áin skyldi falla þar, sem skemmst væri til sjávar, eins og við könnumst við úr kvæði Gríms Thomsen, „Ríddu nú með mér um Sólheimasand“. Hannes á Núpsstaö

x

Starfsmannablað Reykjavíkur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Starfsmannablað Reykjavíkur
https://timarit.is/publication/718

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.