Starfsmannablað Reykjavíkur - 01.12.1939, Side 12
64
STARFSMANNABLAÐ REYKJAVÍKUR
inn um 20 km. yfir
það. Það var mikið
farið að dimma og
fannst okkur það
skuggalegt mjög.
En allt í einu birtist
tunglið í allri sinni
dýrð og hellti geisl-
um sínum yfir leið
okkar. En þrátt fyrir
geisla tunglsins urð-
um við býsna glöð, er
við sáum ljósin í
Kirkjubæjar klaustri,
því þangað var ferð-
inni heitið, en þar
búa hjónin Elín og
Lárus Helgason og
eru þau höfðingjar
miklir og gestrisin mjög, eins og kunn-
ugt er. En við komum svo seint, að
hjónin voru gengin til rekkju. En
snemma næsta morgun kom húsbónd-
inn og tilkynnti okkur að hestar þeir,
1 Bæjarstaðaskógi
Morsárdalur
er við höfðum beðið um til fararinnar
væru tilbúnir, þegar við vildum leggja
af stað austur í Öræfi.
Ákváðum við að dvelja að Kirkju-
bæjarklaustri fram eftir deginum, því
við ætluðum að fara í
tveim áföngum aust-
ur og vildum einnig
skoða okkur um á
hinum fræga sögu-
stað.
Kirkjubæjarklaust-
ur stendur undir
brattri hlíð. Brekk-
urnar eru grasi grón-
ar, lítill lækur renn-
ur niður bergið rétt
við bæinn og myndar
freyðandifoss í tveim
hvíslum og heitir
hann Systrafoss, og
kemur úr stöðuvatni
uppi í heiðinni, sem
Systravatn heitir.