Starfsmannablað Reykjavíkur - 01.12.1939, Síða 19

Starfsmannablað Reykjavíkur  - 01.12.1939, Síða 19
STARFSMANNABLAÐ REYKJAVlKUR 71 stjórnar 18. nóv. 1920. Þá var ákveðið að fela stjórn þess 3 bæjarfulltrúum ásamt 2 bókfróðum mönnum, er þeir velja. En tildrögin til þess að safnið var stofnað voru þau, að þegar botnvörp- ungarnir voru seldir til Frakklands 1917 varð að samkomulagi að 20 þús. af and- virði þeirra yrði varið til að koma upp slíku bókasafni fyrir bæinn. Bæjar- stjórnin kallaði nú eftir þessu fé og fól hinni fyrstu stjórn safnsins að leita eftir heppilegu húsnæði fyrir safnið, en það var ekki fyrr en 19. apríi 1923 að safnið sjálft tók til starfa. Reglugjörð fyrir safnið var sett af stjórn þess 1923. 1 henni segir, að ,,til- gangur safnsins er að efla almenna menntun með því fyrst og fremst að veita mönnum kost á að lesa góðar bæk- ur, svo og á ýmsan hátt annan, eftir því sem ástæður leyfa.“ Bókakostur safnsins hefir aukizt stórkostlega, frá tæplega þúsund bindum, sem byrjað var með, en því er ekki að leyna, að hin gífurlega eftirspurn eftir ýmiskonar skáldsögum hefir haft sín áhrif á bóka- kostinn. Alþýðubókasafnið fékk fyrst inni á Skólavörðustíg 3, en flutti í núverandi húsnæði, Ingólfsstræti 12, árið 1928. Á fyrstu árum safnsins var töluverð hreyfing á því að koma upp byggingu fyrir bókasafn handa bænum, var feng- in teikning að slíkri byggingu 1924 eftir Svend Dahl eftirlitsmann dönsku al- þýðubókasafnanna. títlán og önnur Frá fyrstu tið hef- starfsemi. ir safnið starfað aðal- lega í tveimur deild- um, útlánadeild og lestrarsal. 1 útlána- deild var tekin upp sú nýung, að lána bækur í skip í þar til gerðum bókahill- um og hefir þessi útlánastarfsemi orð- ið mjög vinsæl. Við lestrarsal handa almenningi var snemma bætt lesstofu handa börnum og hefir hún verið mjög mikið notuð. Þá hefir safnið átt bækur í útibúum, svo sem í Verkamannabú- stöðunum, en sú útlánastarfsemi mun nú hætt, enda óréttlátt og gera sumum bæjarbúum hærra undir höfði í þessu efni heldur en öðrum. Húsnæðisskortur safnsins hefir sjálfsagt valdið því, að þetta ráð var tekið um tíma. Nokkra hugmynd um starfsemi safns- ins fá menn við athugun á eftirfarandi talnaskýrslu: Otlánuð Gestir Gestir Ár bindi í lestrarsal í bamalesstofu 1936 116436 6847 10574 1937 119891 5460 9066 1938 143071 7078 9850 Verður ekki annað sagt, en að notk- un safnsins sé geysilega mikil, en við það er að athuga, að útlán skáldsagna er í miklum meirihluta, svo að nærri stappar óhófi. Er hér um vandamál að ræða, sem borið hefir að höndum svip- aðra bókasafna með öðrum þjóðum, og hefir þá verið gripið til ýmsra ráða til þess að beina lestrarlönguninni inn á heilbrigðari leiðir. Menn muna hvellinn, sem varð í Danmörku, þegar bókaút- gefendur gátu trompað því í gegn, að alþýðubókasöfn og lestrarfélög lánuðu ekki út nýjar bækur, nema gegn gjaldi. Jafnvel þótt bókaútgáfa sé áhættusöm, er ekki víst, að slíkar aðgerðir leiddu til góðs eins og hér til hagar, en það er alveg víst að vistlegur lestrarsalur og gnægð góðra handbóka myndi laða menn að safninu til annars en skemmti- lesturs og draga úr heimalestri mis- jafnra bókmennta.

x

Starfsmannablað Reykjavíkur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Starfsmannablað Reykjavíkur
https://timarit.is/publication/718

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.