Starfsmannablað Reykjavíkur - 01.12.1939, Síða 25
STARFSMANNABLAÐ REYKJAVlKUR
77
ur fleiri félög höfðu verið kvödd til
fundarsetu, en boðuðu gild forföll. Um-
ræðuefnið var hin sívaxandi dýrtíð og
ráðstafanir hins opinbera til þess að
stemma stigu fyrir kauphækkunum.
Kom fundarmönnum ásamt um það, að
starfsmannafélögum bæjarins bæri að
taka höndum saman til þess að varna
því, að dýrtíðin bitnaði fremur á þeim
en öðrum vinnandi mönnum. Töldu
fundarmenn ákvæði gengislaganna
óbreytt algjörlega óviðunandi eins og
ástandið er orðið nú, sérstaklega væri
hámarksákvæði laganna of lágt sett og
kaupuppbótina bæri að miða við orðna
verðhækkun á síðasta ársf jórðungi árs-
ins en ekki við verðhækkunina við
misserisskifti. — Á fundinum var sam-
ið álit um þessi mál, sem lagt verður
fyrir hinar einstöku stjórnir starfs-
mannafélaganna til samþykktar.
Þegar gestirnir eru búnir að
drekka kaffið (sem verður að vera
BLÖNDAHLS KAFFI) er venju-
legt að bjóða sælgæti.
Ekkert sælgæti er eins ljúffengt
og vinsælt eins og
litlu yfirhúðuðu
ávaxtakúlurnar
frá sætindaverksmiðju
BLÖNDHALS.
200 ávaxtakúlur kosta
aðeins 1.25.
Fæst hjá flest öllum
______matvörukaupmönnum,_______
Leiðrétting.
Hr. ritstj.
1 síðasta tbl. Starfsmannablaðsins er
vikið að starfi mínu og launakjörum,
sem eftirlitsmaður með kolaverzlun.
Það, sem rangt er hermt, er þetta:
Eg hefi ekki „varla minni' laun hjá
Söfnunarsjóði íslands, heldur kr. 100,00
á mánuði.
Starf mitt útheimtir ekki þekkingu á
,,praktískri kolakyndingu", heldur þekk-
ingu á kolaverzlun. Þó að ég hafi nokkra
þekkingu á kyndingu, skiptir það ekki
máli — skaðar ekki heldur.
Að öðru leyti þakka ég vinsamleg um-
niæli um mig.
Virðingarfyllst
Bjarni Guðmundsson.
Þessi bók er
tilvalin jólagjöf