Starfsmannablað Reykjavíkur - 01.12.1939, Síða 28

Starfsmannablað Reykjavíkur  - 01.12.1939, Síða 28
80 STARFSMANNABLAÐ REYKJAVlKUR Endurminning eftir L. S. Það rigndi. — Veturinn hafði farið í hönd með rign- ingu og kalsa. Trén í görðum borgar- innar höfðu felt blöðin í fyrra lagi. Vatnsflóðið hafði skolað bliknuðu lauf- inu niður í slepjuna á götunum. Raunar voru göturæsararnir fyrir löngu búnir að sópa laufinu burt, svo ekkert minnti á haustið nema rigningin, sem hafði haldið sér nærri látlaust, að fáeinum uppstyttudögum undanteknum, það sem af var veturinn. Götur og torg voru ill yfirferðar sökum krapa, sem hlóðst nið- ur. Svört og kvoðukennd ýfðist leðjan í hverju spori. Tíðin lagðist þungt í menn. Það rigndi sjaldan í snörpum, hressandi skúrum, og lítil tilbreyting var í því að þoka hnígi hrollköld og grá yfir húsaþökin, og héngi í ógeðugum tætlum niður á strætin. Það rigndi enn aðfangadag jóla. — Jólin. — Að þessu sinni höfðu þau komið mér alveg í opna skjöldu. Mér var nokkur vorkunn, því tíðarfarið hafði ekki verið sérlega jólalegt og ýmislegt annríki hafði gert það að verkum, að ég hafði ekki haft fyrirvarann. á um jólaundir- búninginn. Það er annars skrítið, að ég skuli nota orðið ,,undirbúning“ í þessu sambandi. Með hvað á útlendingur, einn síns liðs í stórborg, að undirbúa sig til jólanna. Hann er vinafár, svo ekki þarf hann að vera lengi að hugsa fyrir jólagjöfunum, og lítinn tíma tekur það, að gera vist- legt umhverfis sig í herbergi sínu, og jólahugsanirnar — þær koma af sjálfu sér, þær eru svo að segja einustu gestir hans um jólin. Raunar kannast hann við þessar hugsanir — þær hafa vitjað hans áður í ýmsu gerfi. Heimþráin gerir sér ekki dagamun. Ég geri ráð fyrir, að þessi jól hefðu liðið svo sem hver önnur jól, ef þau hefðu ekki einmitt komið svo flatt upp á mig. Daginn fyrir Þorláksmessu hafði mér eiginlega fyrst fyrir alvöru verið hugsað til þess, að jólin færu í hönd, og fyrir eitthvað hugsanasamband við nálægð jólanna, hafði ég fengið þá hug- mynd, að ég skyldi nota tækifærið til

x

Starfsmannablað Reykjavíkur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Starfsmannablað Reykjavíkur
https://timarit.is/publication/718

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.