Bankablaðið - 01.12.1981, Page 17

Bankablaðið - 01.12.1981, Page 17
kallar fólkið saman á fund og kynnir sjónarmið sín, sem eru náttúrulega í samræmi við þarfir bankans. Hann gefur sér tíma til þess að hlusta skiln- ingsríkur á skoðanir annarra um framkvæmdina. Svenni breytir ofurlítið um lifnað- arhætti og er nú farinn að stunda heita pottinn kl. 7 á morgnana áður en hann fer í vinnuna. Þetta er gert í þeim tilgangi að viðhalda nauðsyn- legri upplýsingaþörf deildarinnar, frá sér háttsettari stjórnendum bankans. Með þessu móti hefur Svenna tekist að staðsetja sjálfan sig á góðan stað í valdapýramída bank- ans. Þó er ýmislegt sem erfitt mun reynast að leysa í því upphaflega markmiði sem Svenni setti sér. Að vísu er kominn á góður vinnuandi innan deildarinnar, þar sem honum hefur tekist að fá starfsfólkið til að taka á sig aukna ábyrgð og hver og einn finnur sig í því, að takast á við verkefnin. En launapólitíkin er þrándur í götu. Nú spyrð þú eflaust: Hvers vegna? Jú, einfaldlega vegna þess að samkvæmt henni er hver starfsmaður ekki verðlaunaður sam- kvæmt eigin verðleikum heldur vegna ákveðinna eiginleika eða hugmynda, sem ekkert eiga skylt við bankann. Þar eru ýmsir verðleikar sem annað hvort starfsmannastjór- anum eða stéttarfélaginu þykir vert að launa fyrir svo sem: íþróttahæfi- leikar, rétt kynferði, ákveðnar póli- tískar skoðanir eða jafnvel rétt ætt- erni. Starfsaldurinn einn nægir oft til þess að þoka mönnum jafnt og þétt í góð laun eða stöðu með tímanum, án tillits til verðleika viðkomandi. Reyndar hefur Svenni oft lýst þeirri skoðun sinni í heita pottinum, að þessu þurfi að breyta. Hann telur að laun hvers einstaklings séu einkamál milli hans og bankans, sem engum komi við nema þeim tveimur og hann hefur jafnvel tekið svo djúpt i árina, að telja það brottrekstrarsök ef þessi trúnaður yrði rofinn. Ástæð- an fyrir þessari skoðun Svenna er sú, að hann telur að ekki sé hægt að virkja einstaklinginn fullkomlega, þannig að hann fullnægi eigin ,,egó”, nema því aðeins að viðkomandi sé verðlaunaður eftir eigin verðleikum í starfi. Kjartan Ingvason, Landsbanka Islands. Pað er audvitað gleðilegt að vita að móðir þín er ánægð með þig, en geturðu ekki útvegað önnur meðmœli... ? Erum alltaf méð mikið úrval af hjónarúmum og einstaklingsrúmum á hagstæðu verði. Einnig vegghillusamstæður, speglasett o. fl. á hagstæðu verði. Höfum úrval af vörum til JÓLAGJAFA svo sem stereobekki, kommóður, skrifborð, einstaklingsrúm o.fl. 17

x

Bankablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.