Bankablaðið - 01.12.1981, Síða 23

Bankablaðið - 01.12.1981, Síða 23
L Túninu kringum háhólinn hefur verið þyrmt, sennilega vegna þess að mönnum fannst þetta vera sá staður, sem næst stæði minningunni um Ingólf og súlumar hans. Húsastæði hans við tjamarendann hefur verið umtumað og á því margbyggt í gegnum tíðina, svo að torvelt hefur reynst að finna það og svo hefur Amar- hváli verið ýmis vanvirða sýnd. Því stendur Amarhólstúnið enn í dag opið og óbyggt. Seðlabankinn nýi mun veita því skjól fyrir köldustu vindáttinni og verja það sælöðri og seltuburði. í stað hins lúna frystihúss við mest áberandi hlið túnsins mun nú rísa fögur bygging, vonandi mesta bæjarprýði. Mesta þrætan um byggingar á hólnum var út af Vídalínsmálinu, sem stóð bæði lengi og kom víða við í stjómkerfi lands- manna og var á hvers manns vörum í skammdegi margra ára. Blaðaskrif og bænaskjöl gengu á báða bóga og undir- skriftum safnað. Nýjasta þrætumálið, keimlíkt hinu, kom svo upp, eins og mönnum er í fersku minni, út af bygg- ingu Seðlabankhússins, sem þá átti að standa neðst á Sölvhólsgötunni í túnfæt- inum á gamla kotinu. Þau málalok urðu, sem allir hafa sætt sig við að bankanum var úthlutuð lóðin á hinum forna Amar- hváli, sem í alla staði hentar betur svo virðulegri stofnun. Margt skammdegið á eftir að ganga yfir í þessu landi og á meðan þrætuhóll- inn er enn óbyggður, verður án efa unnt að stytta sér stundir með meira þrasi um framkvæmdir á honum. En eftir að svo virðulegar byggingar hafa raðað sér allt í kringum hólinn, verður landeigandinn að sjálfsögðu að snyrta hann betur og koma þar upp skrautblómabeðum og skógarhríslum og kannski gæti það einmitt orðið efnið í eina þrætuna enn, hvemig skuli raða plöntunum í brekkumar. Þegar spildur voru seldar úr Arnarhólstúninu fyrrum t.d. fyrir Kalkofninn, fylgdi það með í kaupunum, að jafnframt byggingunni skyldi kaupandi slétta ákveðinn hluta af Arnarhólnum og breyta í tún fyrir land- eigandann. Kannski hefði það átt að vera með í samningunum við Seðlabankann, að hann annaðist skipulagningu og skreyt- ingu Arnarhólsins, til að tryggja að vel yrði að því staðið. Athafnamenn Hinn forni og sagnaríki Arnarhváll var þar sem nú mætast Skúlagata og Kalk- ofnsvegur, en bæði þessi götunöfn em tengd iðnsögu landsins. Ofurhuginn og athafnamaðurinn mikli, Skúli Magnússon, hefur verið kallaður faðir Reykjavíkur, en hann mætti alveg eins kalla föður íslensks iðn- aðar. Þó Innréttingar Skúla hafi ekki komið við sögu Hválsins beint, þá er gat- Kalofninn, Lækurinn og Battaríið lengst tilhægrí. Arnarhólstúnið ergirt af með fallegrigirðingu. an sem þar liggur nú kennd við hann, í virðingarskyni. Innréttingarnar voru um langt skeið stórfyrirtæki í íslensku efna- hagslífi, mun stærri hlutfallslega en nokkurt annað fyrirtæki fyrr eða síðar. Þar varð stétt daglaunamanna til og þar starfaði jafnan fjöldi fólks við ýmis störf, sérstök byggð myndaðist kringum fyrir- tækið og inn í landið kom mikil tækni- þekking í tengslum við það á nokkrum árum, meiri en á mörgum öldum þar á undan. Um það bil heilli öld síðar var annar athafnamaður starfandi í Reykjavík, Eggert Eggertsson kaupmaður. Hann hóf af miklum dugnaði og bjartsýni kalk- nám í Esjunni og reisti ofn til að brenna kalkið í, á malarkambinum undir Amar- hólstúninu, þar sem lækurinn rann til sjávar. Göngustígurinn úti í Battaríið lá Björn Krístjánsson. hankastjóri Landshank- ans (10(10-1020). starfaði sem unglingur i kalk vinnslunni. 23

x

Bankablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.