Bankablaðið - 01.12.1981, Qupperneq 31
AF BANKVANGI
Enda þótt bankar séu almennt
skilgreindir sem peningastofnanir,
sumir tala um innlánsstofnanir en
aðrir lánveitingahús, má og til
sanns vegar færa, einkanlega við
ríkjandi aðstæður hér á landi, að
þeir séu nánast fjárhagslegar bók-
haldsstofur. Peningarnir eru jú lítils
virði og gamla viðkvæðið að þar séu
engir peningar til. Þar til marks um
má nefna að nú tala menn ekki leng-
ur um að berjast í bökkum, heldur
bönkum, enda hart barist um hvem
eyri.
Víst er um að ærið er að gera í
bönkunum við fjárflutninga, öðm
nafni millifærslur, og færslu eins-
konar heimflisbókhalds fyrir flesta
launþega á landinu, sem fá híru sína
lagða inn á reikninga í bönkum og
sparisjóðum, eða það litla sem eftir
stendur af henni þegar búið er að
gjalda keisaranum það sem keisar-
ans er. Upplýst er að tékkafærslur
einar saman vom í fyrra ekki færri
en 24.000.000 og mest um 130.000 á
einum degi, sem segir sína sögu um
annríkið og hringrás peninganna.
Bankabókara titluðu menn sig í
gamla daga, einkum og sér í lagi
meðan allt reikningshald bankanna
var handfært, og ekki er svo langt
síðan því ég man þá tíð í Landsbank-
anum á ísafirði og Samvinnuspari-
sjóðnum. Ef tölvutæknin hefði ekki
komið til þyrfti nú heillan her
manna, en samt sem áður myndu
hlutirnir ganga of hægt fyrir sig, og
tékkakeðjumar blómstra.
Bankabókhald er að ýmsu leyti
frábrugðið almennu bókhaldi enda
þótt það byggi á sömu meginreglum
tvöfalds bókhalds svo sem vænta
má. Auk ólíkra reikningsheita og
Einar S. Einarsson, Samvinnubankanum
sundurliðanna má nefna það að í
banka eru undirbækumar t.d. við-
skiptareikningar færðir fyrst en
aðalbókhaldið síðast, andstætt því
sem annars staðar gerist. Bankinn er
í raun eitt allsherjarbókhald, svo
sem áður er að vikið, og aðalbók-
haldið er miðja þess. Þar er efna-
hagur bankans dreginn saman í eina
mynd og rekstrarafkoman fundin út.
íslendingar hafa verið heldur aft-
MEÐ KAUP Á TELEFUNKEN
LITSJÓNVARPSTÆKI TRYGGIR ÞÚ ÞÉR
BJARTARI OG BETRI MYND
Þegar þú velur þér
litsjónvarp skaltu velja rétt
tæki, tæki frá
uppfinningamönnunum
sjálfum.
Telefunken fann upp Pal
kerfið sem
sjónvarpsframleiðendur í
Evrópu nota.
Þú getur að sjálfsögðu
fengið ódýrari
litsjónvarpstæki en ekki
sambærileg að gæðum.
Telefunken býður upp á
alla þá möguleika sem
aðrir bjóða eins og til
dæmis Inline myndlampa,
fullkomið einingakerfi,
lága orkunotkun (90-130
Wött), bjartari og betri
mynd, sjálfvirkur lita- og
birtustillir, tengimöguleiki
fyrir leiktæki og
myndsegulbönd.
En það sem mestu máli
skiptir er að tækin eru
betri.
BRÆÐURNIR ORMSSON %
LÁGMULA 9 SIMI 38820
31