Sindri - 01.10.1920, Blaðsíða 10
4
ALDAR-AFMÆLI RAFSEGULSINS
SINDRt
fyrir störf sín í þágu rafvísindanna. I Frakklandi voru þá uppi
Ampére, fjörutíu og fimm ára að aldri; Arago, þrjátíu og fjög-
urra ára og De Rive, nítján ára. í Englandi var Daniell
þrítugur; Faraday tuttugu og níu; Sturgeon tuttugu og sjö og
Humphrey Davy fjörutíu og tveggja. I Þýskalandi var Steinheil
þá nítján ára; Schilling þrjátíu og fimm; Humboldt fimmtíu
og eins; Ohm þrjátíu og eins; Rumkorff var seytján ára og
Werner von Siemens aðeins fjögurra. í Ítalíu var Volta sjö-
tíu og fimm ára. Sjálfur var Orsed fjörutíu og þriggja ára
að aldri.
Því hefir oft verið haldið fram um uppfundningu þessa, eins
og margar aðrar, að hún hafi verið hending ein, en það er
mesti misskilningur. Menn hafði lengi órað fyrir einhverjum
skyldleik milli rafmagns og segulmagns og árið 1774 gaf há-
skólinn í Bæheimi út svohljóðandi spurningu: »Er nokkur
verulegur og líkamlegur samjöfnuður milli rafafls og segulafls,
og ef svo er, hvernig verka þessi öfl á dýralíkami?« Alits-
gerðir sem háskólanum bárust um þetta voru gefnar út tíu
árum seinna1 af van Swinden prófessor, sem var höfundur
einnar ritgerðarinnar. Eigi varð komist að neinni ákveðinni
niðurstöðu, þó að margir vísindamenn væru býsna nærri því
að geta leyst þetta viðfangsefni bæði þá og síðar; hjelst málið
því vakandi alt fram á daga Orsteds.
Eins og nærri má geta vakti kenning Orsteds þegar mikla
eftirtekt. Margir gripu strax við henni og hófu rannsóknir á
grundvelli hennar. Skal hjer helst nefna Frakkann André Marie
Ampére. Fregnin af kunngerun Orsteds barst honum 1. sept-
ember 1880 og 18. sama mánaðar flutti hann erindi í París,
þar sem hann lagði fram, í fyrsta sinn, frumatriði fræðanna
um rafstraum. A þeim eru nú bygð öll þau raftæki nútímans,
sem nota rafsegul eða rafsegulmagn að einhverju leyti.
Ampére hjelt áfram tilraunum Orsteds og komst enn lengra.
Hann fann að samskonar áhrifa varð vart með því að nota
raftaug í stað segulnálar, þ. e. að strauiriberandi þráður verkar
1 Receuil de Mémoires Sur l’Analogie de l’Électricité et du Magnetisme, Couronniés et
publiés. — La Haye 1784.