Sindri - 01.10.1920, Blaðsíða 46
40 MUNKTELLS-MÓTORAR sindri
munu kúlulegin aðeins nota V25 hluta af áburðarolíu þeirri
sem annars þyrfti við venjuleg leg.
Glóðarhöfuðið er af nýrri gerð og var oss sagt að aldrei
hafi bilað glóðarhöfuð á mótornum, sem þó er þriggja ára.
Bruninn á eldsneytinu er nær algerlega fullkominn, og því
enginn reykur — óbrendar olíuagnir — sem streymir frá
mótornum. Þessi mótor notar því eldsneytið betur en aðrir
mótorar, sem hjer þekkjast, og hefir það afar mikla þýðingu,
sjeð frá sparnaðar- og endingar-sjónarmiði mótoranna, þar
sem nær ekkert af eldsneytinu fer til ónýtis. Ventlar mótors-
ins eru af nýrri gerð, sem gerir það að verkum, að hávaðinn
í mótorhúsinu verður mjög lítill; verður því allur gangur vjel-
arinnar svo þýður, að slíku hefir maður ekki átt að venjast.
Þar sem hjer er um mjög hentugan hráolíumótor að ræða,
sem íslenskir báta- og skipaeigendur þyrftu að kynnast nánar,
birtum vjer hjer á eftir útdrátt úr prófskýrslu vjelarannsóknar-
stofu sænska ríkisins í Ultuna. Mótor sá, er reyndur var, var
30 hestafla eins cyl. bátamótor.
GANGSETNINGARRAUNIN.
1. Frá því er kveikt var í sprittinu og þangað til lampinn var
settur á, liðu................................... 5.33 mín.
2. Frá því er lampinn var settur á og þangað til
mótorinn var gangsettur, liðu.................... 6.57 »
3. Frá því er lampinn var settur á og þangað til
full hleðsla var sett á mótorinn, liðu........... 7.30 »
4. Steinolíu eytt á lampann........................ 0.385 kg
5. Steinolíu eytt á lampann, á hvert hestafl .... 0.0129 »
GANGRAUNIN.
Hjer að neðan tilfærum vjer orðrjetta skýrsluna um gang-
raunina.