Sindri - 01.10.1920, Qupperneq 12
6
ALDAR-AFMÆLI RAFSEGULSINS
SINDRÍ
vitnis. Vitni að þessum tilraunum var þar að auki Hauch
excellence, sem hefir verið heiðraður af konungi með hinum
æðstu metorðum og lengi verið Uunnur fyrir þekkingu sína á
náttúruvísindunum, jacobsen prófessor í læknisfræði, skarpur
tilraunamaður og hinn reyndi efnafræðingur Zeise, dr. phil.
]eg gerði sömuleiðis oft einn tilraunir með áhrif þau sem
fyr getur. En það sem mjer hepnaðist að uppgötva þá, hefi
jeg endurtekið í viðurvist þessara lærðu manna.
í skýrslunni um tilraunirnar ætla jeg að hlaupa yfir alt það
sem ekki gat gefið frekari upplýsingar þegar málavextir voru
orðnir kunnir, enda þótt það hafi orðið til þess að leiða þá í
Ijós. Skal því það eitt tekið fram, sem sýnir greinilega mála-
vexti og látið þar við sitja.
í Galvansfestinni sem við notuðum eru 20 ferstrend eirker
og er hvert þeirra 12 þumlungar á lengd og jafn hátt, en
breiddin var litlu meiri en 2'h þumlungur. Við hvert ker eru
festar 2 eirræmur, sem eru beygðar þannig, að þær geta borið
eirstöng er hangir á sinkplata sú, er nær niður í vatnið í
næsta keri. Voo hluti af þunga vatnsins í kerjunum er brenni-
steinssýra og V60 saltpjeturssýra. Sá hluti af hverri sinkplötu,
sem er í vatninu er rjetthyrningur hjer um bil 10 þumlungar
á hvern veg. Einnig má nota minni tæki, geti það aðeins gló-
hitað vír.
Báðir endar galvansfestarinnar eru samtengdir með vír, og
munum vjer hjer eftir kalla hann tengitaugina eða tengivírinn,
til hægðarauka. En áhrif þau sem koma fram í þessari taug
og umhverfi hennar munum vjer kalla rafsnerru (conflictus
electricus).
Beinn hluti af þessum vír er settur lárjettur fyrir ofan og
samsíða segulnálinni, sem hengd er upp á venjulegan hátt.
Sje þess þörf, má beygja tengivírinn á þann hátt, að hæfilegur
hluti hans liggi þannig sem tilraunin krefst. Þegar öllu hefir
verið þannig fyrir komið mun segulnálin hreyfast, og mun hún
hörfa vestur á við undir þeim hluta tengivírsins, sem fær rafið
stystu leið frá afturskauti galvansfestarinnar.
Ef fjarlægð tengivírsins frá segulnálinni fer ekki fram úr 8A
þumlungs nemur skekkja nálarinnar hjer um bil 45°. Ef fjar-