Sindri - 01.10.1920, Side 13
SINDRI
ALDAR-AFMÆLI RAFSEGULSINS
7
lægðin er aukin minkar skekkjan að sama skapi. Annars er
fjarlægðin mismunandi eftir krafti tækisins.
Tengivírinn má flytja bæði í austur og vestur, ef stefnu
hans er ekki breytt, og breytir það þá ekki áhrifunum nema
að styrkleika. Af því leiðir að áhrifin verða á engan hátt kend
aðdrætti, því að sama segulskautið sem nálgast tengivírinn
þegar hann er færður austur á við hörfar frá honum þegar
hann er færður vestur á við, ef skekkjur þessar ættu að stafa
af aðdrætti eða hrindingu. Tengitaugin getur verið úr fleiri en
einum samtengdum vírum eða málmböndum. Eðli málmsins
breytir ekki áhrifum nema ef til vill krafti þeirra. Við höfum
með sama árangri notað bæði platínu, gull, silfur, látúns og
járnþræði, blýræmur og tinræmur og auk þess kvikasilfur.
Taug sem er slitin en vatn í milli endanna, er ekki alveg ónýt
nema millibilið nemi mörgum þumlungum.
Ahrif tengivírsins á segulnálina fara gegn um gler, málma,
trje, vatn, trjákvoðu, leirker og steina, því þau minka ekki að
neinu þótt á milli sje skotið gler-, málm- eða trjespjaldi. Þau
hverfa heldur ekki þótt skotið sje inn í milli í einu gler-,
málm- eða trjespjöldum, og virðast jafnvel varla minka. Hið
sama á sjer stað ef skotið er inn rafbera, eldsteinsplötu eða
leirkeri, þó að það sje fult af vatni. Tilraunir okkar hafa enn-
fremur sýnt að áhrif þessi breytast ekki þótt segulnálin sje
lokuð í látúnsdós fullri af vatni. Þess gerist varla þörf að taka
það fram, að menn hafa aldrei tekið eftir neinum áhrifum raf-
magns eða galvanmagns, sem fer gegnum öll þessi efni. Þess
vegna eru þau áhrif sem felast í rafhrifunum alt annars eðlis
en þær verkanir, sem stafa af öðrum hvorum þessara krafta.
Ef tengivírinn er lagður á Iárjettan flöt undir nálinni, verða
áhrifin að öllu hin sömu og í fletinum ofan við nálina, nema
að þau eru í öfuga stefnu. Því að það segulskautið mun hörfa
austur á við, sem er yfir þeim hluta tengivírsins, sem fær
rafið stystu leið frá afturskauti galvansfestarinnar.
Til þess að auðveldara sje að muna þetta, má nota þessa
reglu:
Segulskautið sern raf afturskautsins fer inn yfir hrekkur í
vestur, en í austur ef samskonar raf fer út undir því.