Sindri - 01.10.1920, Side 27

Sindri - 01.10.1920, Side 27
SINDRI Málmar fundnir á Islandi. EFTIR B]0RN HrISTIÁNSSON, FYRV. BANKASTJÓRA. Yfirlit. Um eitt skeið nam hr. Björn Kristjánsson fyrverandi banka- stjóri efnafræði í Þýskalandi, aðallega það er snerti máimrannsóknir í steinum. Hefir hann í mörg ár fengist við rannsóknir á hjerlendum stein- tegundum og gefið sig alfarið að þeim síðan hann ljet af stjórn Lands- bankans árið 1918. Eftir beiðni ritstjórnarinnar hefir hr. B. Kr. ritað skýrslu þá, er hjer fer á eftir, um árangurinn af þessum rannsóknum sínum. Þar eru taldar þær málmtegundir, sem hann hefir fundið í steinum hjer á landi. Ættu rannsóknir þessar að geta komið þeim að töluverðum notum, er framvegis munu fást við málmrannsóknir hjer á landi. RITSTJ. ]eg vil með ánægju verða við tilmælum yðar> herra rit- stjóri, og láta yður vita í stórum dráttum, hvaða málma jeg hefi orðið greinilega var við í steinum hjer á landi síðustu árin, sem jeg einkum hefi gefið mig við athugun hjerlendra steina. Þegar jeg fyrir 14 árum fór svolítið að kynna mjer jarð- fræði og málmmyndunarfræði, fjekk jeg þá skoðun, að alls eigi gæti verið útilokað að málmar væru hjer til í meiri eða minni mæli. ]eg byrjaði þá á því að kynna mjer ýmsar stein- tegundir, er jeg gat náð til, án þess jeg þá hefði tíma til að ferðast um. og leita sjálfur að líklegum bergtegundum. Og jeg fjekk aldrei tíma til þess fyr en jeg ljet af bankastjórn. Síðustu sumurin hefi jeg því aðallega athugað bergtegundir, einkum í Lóni, þar á meðal í Hornunum báðum, og rann- sakað steinana á vetrum. ]eg bjóst alls ekki við, þegar í stað, að finna í ofanjarðar- steinum, og með mínum litlu tækjum, vinnanlegar námur, hefi jeg því lagt, aðalhersluna á að grenslast eftir, hversu margar

x

Sindri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sindri
https://timarit.is/publication/729

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.