Sindri - 01.10.1920, Síða 29

Sindri - 01.10.1920, Síða 29
SINDRI Verndarbrjef og einkaleyfi.1 EFTIR GUÐM. M. WAAGE. Yfirlit. Saga verndarbrjefa og einbaleyfa er rabin ítarlega frá fyrstu tímum alt fram á vorn dag. RITSTJ. Verndun uppfundninga hefst á miðöldunum. Fyrst svo sögur fari af eru einkaleyfi veitt á Englandi; þau voru þó í dálítið öðruni anda en nú gerist, því einstakir menn fengu einkaleyfi til að framleiða nýja vörutegund eða stunda nýja iðngrein. Arið 1331 var Jóhanni Kemp veitt verndarbrjef sem vefara og litara. Arið 1336 fengu tveir vefarar frá Brabant verndar- brjef í Jórvik og 1386 þrír úrsmiðir frá Delft. 1440 fær Jó- hann von Sciedam verndarbrjef til saltgerðar. Af framantöldu er ljóst, að aðaláherslan var lögð á það, að flytja inn til Eng- lands nýjar iðngreinar frá öðrum löndum. Tilgangur þessi sjest á brjefi því, er Moreton kanzlari Hinriks VII. ritaði Parlamentinu: »— til þess að þjóðin verði fær um að framleiða listir og iðnað, ríki vort standi betur á eigin fótum, letin minki og peningar vorir hætti að streyma út úr landinu fyrir erlendan varning«. Verndarbrjefin voru ýmist stíluð til allra þegna konungs, eða ákveðins landshluta. Þau voru svonefnd opin brjef (literae patentes), og nota nú flest allar þjóðir patent-nafnið við einka- leyfisveitingar á nýjum uppfundningum. Iðnaðurinn efldist nú óðfluga, en jafnframt sáu konungarnir að einkaleyfisveitingarnar gátu orðið þeim drjúg tekjulind, og þá hófst tímabil sem mest líktist einokun. Nú grundvölluðust 1 Erindi flutt í »Iönfræöaklúbb Reykjavíkur« 12. des. 1917.

x

Sindri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sindri
https://timarit.is/publication/729

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.