Bankablaðið - 01.12.1986, Page 3
3
Banka
blaðið
Samband íslenskra bankamanna
stofnað 30. janúar 1935.
Aðildarfélög eru 18
Félagsmenn í dag eru um 3600
Skrifstofa: Tjarnargata 14,101 R.
Formaður: Hinrik Greipsson.
Aðrir í stjórn og varastjórn: Hrafn-
hildur B. Sigurðardóttir, Friðbert
Traustason, Sigurður Geirsson,
Margrét Brynjólfsdóttir, Yngvi Örn
Kristinsson, Sólveig Guðmundsdótt-
ir, Guðrún Hansdóttir, Birna Bjarna-
dóttir, Kjartan P. Einarsson og
Gunnar Hámundarson.
Starfsmenn:
Helgi Hólm, framkvæmdastjóri,
Guðrún Ástdís Ólafsdóttir, fulltrúi,
Kristín Guðbjörnsdóttir, skrifst.m.
52. árg. desember 1986.
Útgefandi: Samband ísl. bankamanna.
Ábyrgðarmaður: Hinrik Greipsson
Ritstjóri: Helgi Hólm
Aðsetur: Tjarnargata 14,101 R.
símar: 26944 og 26252
Bankablaðið er prentað í 4000
eintökum og sent öllum
félagsmönnum SÍB.
Umbrot og filmuvinna: Repró
Setning, prentun og bókband:
Formprent.
Stjórn og starfsfólk
Sambands ísl. bankamanna
sendir öllu bankafólki
hugheilar óskir um
gleðilegjól
ogfarsælt nýtt ár.
Hinrik Greipsson,form. SÍB:
ÁGÆTU FÉLAGAR
Fastur punktur í starfsemi SÍB er útgáfa þessa blaðs. Nú þegar það lítur enn
dagsins Ijós eru ýmsar blikur á lofti í starfsemi bankanna. Hugmyndir um upp-
stokkun bankakerfisins hafa verið reifaðar af ýmsum ráðandi aðilum þessa lands
og umræðan væntanlega aldrei náð lengra en einmitt nú. Ekki er þó Ijóst hver
útkoman verður. Það erósk Sambands íslenskra bankamanna að niðurstaða þess-
ara hræringa verði sem hagstæðustfyrirfélagsmenn SÍB og við munum kappkosta
að hagsmunir okkarfélagsmanna verði ekkifótum troðnir.
Við munum beita öllum styrk stéttarfélagsins til þess að þær breytingar sem í
vændum eru, valdi sem minnstri röskun á högumfélagsmanna.
Á þessum tímamótum ríkir töluverð óvissa í kjaramálum bankamanna, Al-
þingiskosningar eruað vori og þœr setja vissulega strikí reikninginn í þeim samn-
ingum sem framundan eru. Það mun væntanlega verða erfitt að náfram umtals-
verðum grunnkaupshækkunum við þessar aðstæður og jafnvel þótt þær næðust
fram, vœri engin vissafyrir því að þær héldust. Kaupmáttartrygging er því algjör
forsenda komandi samninga og samhliða henni ýmsar breytingar á skattákerfinu.
Samninganefnd SÍB mun í komandi samningaviðræðumjafnframt leggja áherslu
á jafnréttismál og öryggismál.
Þó að Ijóst sé að jafnréttisbaráttan undanfarin árhafi skilað þó nokkrum árangri
er enn langt í land að hægt sé að segja að jafnrétti milli kynjanna ríki í banka-
kerfinu. SÍB mun því halda áfram þeirri baráttu.
Öryggismál hafa ekkifengið mikla umfjöllun fram að þessu. Nauðsynlegt erað
ræða þessi mál af alvöru m.a. til að fyrirbyggja að hér skapist ástand sem vel er
þekkt i öðrum löndum, þarsem bankarán eru mjög tíð.
Fræða þarf starfsfólk bankanna um, hvemig það á að bregðast við ef til óvæntra
tíðinda dregur.
Samstarf SÍB við félaga okkar á Norðurlöndunum ætti að geta skilað góðum
árangri varðandi öryggismál, þarsem þeirhafa þurft aðglíma við mikil vandamál á
þessu sviði og búa því yfir mikilli reynslu og þekkingu um þessi mál.
Ágætu félagar, stjóm Sambands íslenskra bankamanna sendir ykkur baráttu-
kveðjur með von um að nýtt árfæri okkurbætt kjörog bjartariframtíð. GLEÐILEG
JÓL.
Stjórnarmenn að störfum. Ýmis mál koma upp sem krefjast umfjöllunar. Hér eru
Hrafnhildur, Margrét, Sigurður og Yngvi Örn að störfum.
Forsíðumyndin er af trúnaðarmönnum SÍB og var hún tekin á kynningarnámskeiði sl. vor.