Bankablaðið - 01.12.1986, Blaðsíða 21
21
Landsbanki íslands 100 ára
Úr afgreiðslu Breiðholtsútibús Landsbanka íslands.
Á þessu ári eru eitt hundrað ár síðan
Landsbanki íslands tók til starfa. Það
hafði um langan tíma verið íslending-
um þyrnir í augum að hafa ekki sama
aðgang að peningum og tíðkaðist í ná-
grannalöndunum. Á Alþingi árið 1853
fóru fram miklar umræður um f jármál
og var þá hreyft hugmyndinni um
banka. Var málaleitan þar að lútandi
send til konungs, en hann synjaði
beiðninni.
Um miðja nítjándu öldina vaknaði
víða í Evrópu áhugi manna fyrir að
reka sparisjóði og því fór það svo að
hér var árið 1872 settur á laggirnar
Sparisjóður Reykjavíkur. Tók hann
reyndar við fé hvaðanæva af landinu.
Árið 1885 eru síðan samþykkt lög á
Alþingi um stofnun Landsbanka. Segir
í lögunum, að tilgangur bankans skuli
vera að greiða fyrir peningaviðskipt-
um í landinu og styðja að framförum
atvinnuveganna. Var þess jafnframt
getið, að bankinn skyldi svo fljótt sem
auðið væri setja á stofn útibú utan
Reykjavíkur.
Landsbanki íslands var fyrst opnað-
ur almenningi þann 1. júlí 1886. Af-
greiðsla bankans var í Bakarabrekk-
unni (nú Bankastræti). Var bankinn
opinn á virkum dögum milli klukkan
tólf og tvö. Var mjög rólegt í bankanum
fyrsta kastið, en að hálfu ári liðnu hafði
hann sannað tilverurétt sinn.
Mikið vatn hefur til sjávar runnið á
þessum eitt hundrað árum. Landsbank-
inn er í dag langstærsti banki landsins
með hátt í 1100 starfsmenn í sinni
þjónustu og afgreiðslur um allt land.
Hefur bankinn ætíð verið í farar-
broddi, hvað varðar viðskipti við
höfuðatvinnuvegi landsins og á þar
farsælt starf að baki.
Bankablaðið vill nota þetta tækifæri
til að færa stjórnendum og starfsfólki
Landsbanka íslands bestu óskir um
heilladrjúgt starf í framtíðinni.
Sparis jóður vélst jóra 25 ára
Um þessar mundir eru 25 ár liðin frá
stofnun Sparisjóðs vélstjóra. Spari-
sjóðurinn hefur dafnað vel á þessum
stutta tíma og fer ná starfsemin fram í
mjög glæsilegum húsakynnum við
Borgartún.
SÍB færir hér með stjórnendum og
starfsfólki hans bestu árnaðaróskir í
tilefni afmælisins.
Úr afgreiðslu útibus Sparisjóðs veistjora, Bent Bjarnason, útibússtjóri.
NÝTT ÚTIBÚ
Sparisjóður vélstjóra hefur nú opnað
útibú að Síðumúla 1 í Reykjavík. Úti-
búið er þar staðsett í miklu athafna- og
viðskiptahverfi og þar á því að vera
góður grundvöllur til mikilla viðskipta.
Húsnæðið, sem er í nýju húsi á horni
Ármúla og Síðumúla er mjög smekk-
lega frágengið og er aðstaða fyrir við-
skiptavini og starfsfólk hin besta. Úti-
bússtjóri er Bent Bjarnason og auk
hans starfa þar fjórir aðrir starfs-
menn.
Bankablaðið óskar starfsfólkinu til
hamingju með opnunina.