Bankablaðið - 01.12.1986, Blaðsíða 41

Bankablaðið - 01.12.1986, Blaðsíða 41
Margrét Brynjólfsdóttir: • • Oldrunarmál Á undanförnum árum hefur stjórn SÍB árlega boðað til fundar með eftir- launaþegum innan vébanda SÍB. Dag- skrár þessara funda hafa verið marg- víslegar, t.d. verið fjallað um lífeyris- sjóðsréttindi, eftirlaun, Trygginga- stofnun ríkisins, um ýmis fríðindi og skerðingarákvæði. Hver sé þjónusta Reykjavíkurborgar við aldraða. Einnig var haldið námskeið um starfslok, til að veita innsýn í þær breytingar er geta orðið á högum fólks er það lætur af störfum. Þessir fundir hafa jafnan verið vel sóttir af lífeyrisþegum og einnig hafa komið félagar innan SÍB sem enn eru í starfi en munu innan skamms tíma fara á eftirlaun. 34. þing SÍB gerði samþykkt þess efnis að fela stjórn SÍB að kanna grundvöll til stofnunar félags lífeyris- þega innan vébanda SÍB og vera til að- stoðar þar um. Stjórn SÍB boðaði því til fundar með lífeyrisþegum þann 22. mars sl. að Tjarnargötu 14, til að kanna hug þeirra til stofnunar sérstaks sambands. Eftir umræður varð niðurstaða fundarins sú að kjörinn var fjögurra manna starfs- hópur er vinna skyldi að undirbúningi að fundi er hugsanlega gæti orðið stofnfundur félags lífeyrisþega innan SÍB. í starfshópinn voru kosin þau: Guðjón Halldórsson, Útvegsbanka ís- lands, Hulda Ottesen, Landsbanka ís- lands, Garðar Þórhallsson, Búnaðar- banka íslands, Einar B. Ingvarsson, Landsbanka íslands. Starfshópurinn mun væntanlega stefna að því að þessi fundur verði haldinn í febrúar eða mars nk. SÍB telur að markmið félags lífeyr- isþega gæti orðið að bæta félagslega aðstöðu lífeyrisþega með: 1. kjaramál. Samtök lífeyrisþega fylgist með framkvæmd á þeim breyt- ingum í kjarasamningum er snerta þá. 2. réttindamál. Veita upplýsingar og fræðslu til félagsmanna um ýmis rétt- indi t.d. Tryggingastofnun ríkisins, líf- eyrisréttindi o.fl. Nefna má að í dag fá þeir starfsmenn sem fá greidda fasta yfirvinnu sem uppbót í grunnlaun ekki að greiða iðgjald í lífeyrissjóð af þeim launum og fá þar af leiðandi ekki eftir- laun í samræmi við raunveruleg laun. 3. trúnaðarmenn. Félagið stuðli að því að kjörinn verði trúnaðarmaður úr hópi eftirlaunaþega í öllum aðildarfé- lögum SÍB, er sjái um að viðhalda inn- byrðis tengslum eftirlaunaþega og miðli félagslegum upplýsingum. Hvers vegna félag lífeyrisþega. Meðan við erum í starfi þá getum við auðveldlega fylgst með, haft áhrif á og tekið þátt í starfi okkar starfsmanna og stéttarfélags, sem bæði hafa þá skyldu að vernda okkar hag og rétt. Við starfslok verður sú breyting, að dagleg samskipti við starfsfélaga og stofnun rofnar og upplýsingastreymi minnkar svo og stéttarfélagsleg virkni. Efnahagur getur breyst, heilsu hrakar, fólk getur einangrast, það myndast tómarúm og áhugi fyrir fé- lagslegum samskiptum og réttindum dofnar. En allt þetta er einstaklings- bundið og gerist ef til vill ekki, en eitt er víst að öll eldumst við, öll þurfum við hvatningu. Er ekki rétt að eftirlaunaþegar fái sjálfir að hafa áhrif á sín málefni og við hin yngri hvetjum þá og styðjum. ÉGSPYR Og vona að svar ykkar verði: Hvetjum, styðjum, til að hef ja starf og stofna félag. Verzlunarbankinn í Breiðholti flytur um set Fyrir nokkrum vikum flutti útibú Verzlunarbankans í Breiðholti frá Arnarbakka og niður í Mjóddina. Úti- búið var fyrir löngu búið að sprengja utan af sér húsnæðið en á nýja staðnum er heldur rýmra um starfsfólk og við- skiptamenn. KIENZLE-afgreiðslutæki hafa nú verið tekin í notkun. Eins og kunnugt er, þá hefur bankinn öfluga tölvudeild, og lengi vel var ekki ákveðið, hvaða tegund afgreiðslutækja bankinn myndi taka í notkun. Verður útibúið nú væntanlega tengt við Reiknistofu bankanna innan tíðar. Bankablaðið óskar bankanum og starfsfólkinu til haningju með hið nýja húsnæði. Áslaug Jónsdóttir við kassann í hinni nýju afgreiðslu Verzlunarbankans í Breiðholti.

x

Bankablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.