Bankablaðið - 01.12.1986, Blaðsíða 42

Bankablaðið - 01.12.1986, Blaðsíða 42
42 íþróttir IÞROTTAHATIÐ SIB 1986 í framhaldi af vel heppnuðu íþrótta- móti í sambandi við 50 ára afmæli SÍB 1985 ákvað íþróttanefnd SÍB á sínum fyrsta fundi þann 23. janúar 1986 að halda sams konar mót á þessu ári. Helsta markmið íþróttanefndar er að standa fyrir keppni í ýmsum íþrótta- greinum til að stuðla að aukinni kynn- ingu og efla samstarf og félagsanda meðal bankamanna. Sú breyting varð á skipan nefndarinnar að Anna Vignir og Birgir Ástráðsson gengu út úr nefnd- inni og eru þeim færðar þakkir fyrir vel unnin störf. íþróttanefnd skipa nú eftirtaldir: Kjartan Páll Einarsson, Aðalsteinn Örnólfsson, Anna Kjartansdóttir, Geir Magnússon og Gyða Úlfarsdóttir. Af hálfu skrifstofu SÍB starfar Guðrún Ástdís Ólafsdóttir með nefndinni. Nefndin vann mikið starf við skipu- lagningu og framkvæmd þeirra móta sem hér verður nánar greint frá. Því miður koma oft fyrir óhöpp í keppni í íþróttum. Þessi unga bankamær snéri sig illilega á fæti, en hún lætur það ekki á sig fá — brosir bara kankvís. Knattspyrna: 18 lið karla og kvenna tóku þátt í knattspyrnumóti SÍB sem fram fór í Digranesi í Kópavogi dagana 4.-5. apríl. í karlaflokki tóku 15 lið þátt í mótinu. Úrslit urðu þessi: 1. Landsbanki íslands, Akureyri. 2. Reiknistofa bankanna. 3-4. Búnaðarbanki íslands. 3-4. Alþýðubankinn. í kvennaflokki voru 3 lið og úrslit þessi: 1. Iðnaðarbankinn. 2. Búnaðarbankinn. 3. Samvinnubankinn. Blakmót SÍB var haldið í íþróttahúsi Háskólans 2. apríl og þar fengum við aðstoð íþrótta- félags stúdenta við framkvæmd móts- ins. 4 lið tóku þátt í mótinu og spiluðu allir við alla. Þess má geta að liðin voru jafnt skipuð konum sem körlum. Seðla- bankinn vann nú annað árið í röð eftir mjög harða keppni við Reiknistofu bankanna. Úrslit urðu þessi: 1. Seðlabankinn. 2. Reiknistofa bankanna. 3. Iðnaðarbankinn. 4. Búnaðarbankinn. Körfuknattleikur: Til leiks í körfuknattleikskeppninni mættu 8 lið með marga snillinga innan- borðs í Digranesi þann 5. apríl. Að lokum var það lið Búnaðarbankans sem stóð uppi sem sigurvegari. Úrslit urðu annars: 1. Búnaðarbankinn. 2. Reiknistofa bankanna. Önnur lið sem þátt tóku í riðlakeppn- inni voru: Verzlunarbankinn, Sam- vinnubankinn, Alþýðubankinn, Spari- sjóðurinn í Keflavík, Landsbankinn og Iðnaðarbankinn. Handknattleikur: Forkeppnin fór fram að Varmá í Mosfellssveit 19. mars með þátttöku 6 liða í karlaflokki. í úrslit komust lið Samvinnubanka/Alþýðubanka, og lið Búnaðarbankans. í úrslitaleik þann 5. apríl vann sam- einað lið Samvinnubankans/Alþýðu- bankans góðan sigur á liði Búnaðar- bankans. Önnur lið sem tóku þátt voru frá Reiknistofu bankanna, Landsbankan- um, Iðnaðarbankanum og Verzlunar- bankanum. í handknattleik kvenna tóku þátt 2 lið frá Landsbankanum og Búnaðarbank- anum. Léku þau 2 leiki og vann lið Landsbankans. Hér tekur Anna Kjartansdóttir við sigur- laununum í handknattleik kvenna úr hendi Helga Hólm. Þetta mótahald var mjög vel heppn- að og skemmtu þátttakendur sér hið besta. Það eina sem vantaði var að fleiri áhorfendur hefðu mátt láta sjá sig og hvetja sína menn og konur í harðri og skemmtilegri keppni. Vonum við að úr þessu verði bætt á næsta ári. íþróttanefnd SÍB þakkar öllum þeim er aðstoðað hafa við undirbúning og framkvæmd þeirra móta er haldin hafa verið á þessu starfsári.

x

Bankablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.