Bankablaðið - 01.12.1986, Blaðsíða 28

Bankablaðið - 01.12.1986, Blaðsíða 28
28 Öryggismál og kannski hefur enginn bankanna hugað vel að öllum þáttum öryggis- mála hjá sér. Ótal mörg atriði komu fram á ráð- stefnunni, sem gætu orðið tilefni til athugana og framkvæmda í hinum ýmsu afgreiðslustöðum bankanna. í stórum dráttum má skipta efnis- atriðum í þrjá flokka. 1. Öryggisreglur og öryggisbúnað, sem bankarnir hafa sett upp hjá sér, þarf alltaf að endurbæta og fullkomna og aldrei má sofna þar á verðinum. 2. Fræðsluþátturinn í öryggismal- unum, þ.e. að starfsmenn viti um hinar ýmsu öryggisreglur í umhverfi sínu, skilji þær og meðtaki. 3. Þáttur fjölmiðla í að skapa með þjóðinni ímynd hvers banka fyrir sig og bankakerfisins í heild. Besta og odýrasta öryggistæki bankanna er sú vissa í huga misyndismannanna að bankar séu svo öruggar stofnanir, þar sé svo dugandi starfsfólk og allt í svo öruggum skorðum að það þýði ekki að bera þar niður til rána eða illverka. Þetta er það öryggistæki sem bank- arnir hafa fyrst og fremst reitt sig á fram til þessa, en sumir fjölmiðlar hafa með iðju sinni undanfarin ár kastað nokkurri rýrð á þessa öryggis- ímynd bankanna með þjóðinni. Hugs- anlega er þarna nýtt málefni til að ræða á næstu ráðstefnu Bankamanna- skólans, sem ég vona að náist samstaða um að halda sem fyrst. Ég vil enn einu sinni þakka kærlega öllum þeim, sem með einhverjum hætti lögðu ráðstefnunni lið, því hún er ekki aðeins mikið framlag til öryggis- mála í bönkunum eða fræðslumála í stéttinni, heldur ekki síður eykur hún á samhyggð og samhug stéttarinnar allrar. Því það eru miklu fleiri atriði sem tengja bankana saman en sem skilja þá í sundur. Að ráðstefnu Bankamannaskólans lokinni skutum við nokkrum spurn- ingum að þeim Hönnu Pálsdóttur, aðal- féhirði í Búnaðarbanka og Sólveigu Guðmundsdóttur, stjórnarmanni í SÍB. Hanna Pálsdóttir Hanna kvaðst hafa verið mjög ánægð með ráðstefnuna. Að sjálfsögðu var fátt af því nýtt fyrir hana af því efni, er fyrirlesarar úr bönkunum fluttu. Aftur á móti voru mjög athyglis- verð erindi þeirra er komu utan að. Hanna Pálsdóttir Sérstaklega þá er rætt var um hinn mannlega þátt öryggismála. Aðspurð um stöðu öryggismála í bönkunum í dag, sagði Hanna að þau mál þyrftu ávallt að vera í endurskoð- un og því væri ekki til einfalt svar við slíkri spurningu. Að lokum spurðum við Hönnu, hvað hún vildi leggja áherslu á í sínum banka í framtíðinni. Ég hef áhuga á, í framhaldi af þessari ráðstefnu að halda fund með mínu starfsfólki til ð fara yfir sumt af því efni sem fjallað var um. Ég held að nauðsynlegt sé að fræða starfsfólk bankanna meir en verið hefur um þessi mál. Sólveig Guðmundsdóttir Við skutum sömu spurningum að Sól- veigu. Hún sagðist hafa verið ánægð með ráðstefnuna. Þó hefði mátt gefa meiri gaum að innra öryggi bankanna. Hún taldi, að öryggismál bankanna væri ekki í nógu góðu lagi. Hvað fram- tíðina snerti, þá þyrfti að auka fræðslu og upplýsingar til starfsfólksins. I STÖÐUGRI SÓKN Bankablaðið átti eftirfarandi viðtal við Baldur Ágústsson, forstjóra örygg- isfyrirtækisins VARA, þar sem hann sat á skrifstofu sinni að Þóroddsstöð- um við Skógarhlíð. Þarna, í næsta ná- grenni við hitaveitutankana í Öskju- hlíð, hafa margir borgarbúar átt ánægjustundir. En það er nú önnur saga, ég er hér mættur til að fræðast af Baldri um starfsemi fyrirtækis hans, VARA. Við leggjum fyrst þá spurningu fyrir Baldur, hvenær og hvernig VARI hafi verið stofnað. Baldur sagðist hafa stofnað fyrirtækið árið 1969. í dag eru starfsmenn 15 talsins og virðist þörfin fyrir starfsemina vera vaxandi. Hvert er markmiðið með þessari starfsemi? Höfuðmarkmiðið er að sjálfsögðu að tryggja öryggi viðskiptavina okkar. Þetta felst í fyrirbyggjandi aðgerðum svo sem mannaðri gæslu og uppsetn- ingu öryggiskerfa sem gera aðvart um innbrotstilraunir, eldsvoða, flæðandi vatn, afbrigðilegt hitastig t.d. í tölvu- herbergjum o.fl. o.fl. Auk þess seljum við peningaskápa, tölvugagnaskápa, hvelfingahurðir. næturinnkast og annan öryggisbúnað sem m.a. bankar nota. Þú sagðir að þörfin vceri vaxandi. Af hverju stafarþað? í fyrsta lagi er vaxandi hætta á inn- brotum og eldsvoðum. Þetta stafar t.d. af aukinni notkun fíkniefna. í öðru lagi eru stjórnendur fyrirtækja og stofn- ana nú fróðari um að hægt er að gera ýmislegt til að koma í veg fyrir tjón.

x

Bankablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.