Bankablaðið - 01.12.1986, Blaðsíða 33

Bankablaðið - 01.12.1986, Blaðsíða 33
33 Ánægðir þátttakendur og leiðbeinendur í lok trúnaðarmannanámskeiðs NBU 1986. Minna má nú sjá. rétti væri ekki eingöngu mál kvenna, heldur BEGGJA KYNJA. Einnig það að við konur yrðum að styðja betur við bakið hver á annarri varðandi það að sækja um störf. Námskeiðið var kryddað með ferð til Stokkhólms. Fyrst var farið í kaup- höllina, Stockholms Fondbörs, þar fengum við fyrirlestur um gang mála þar. Síðan var farið í Första Spar- banken, þar sem kynntar voru nýj- ungar í bankakerfinu, svo sem þjón- usta í gegnum síma tengdan tölvu. Þá fylgdi útsýnisferð um Stokkhólm og að lokum farið með bát út í Badholmen þar sem SBmf bauð til kvöldverðar. í lok námskeiðisins var gerð úttekt á því hvað við hefðum fengið út úr námskeiðinu. Flestir virtust ánægðir með útkomuna. Allt tekur enda og nú var komið að kveðjustund. Við mynduðum hring í salnum og tókumst í hendur. Hand- tökin voru þétt og allir voru hljóðir. Guðrún Ástdís las upp ljóð um kær- leika og síðan lékum við eldfjall á ís- lenska vísu. Það var erfitt að kveðjast eftir að hafa fundið þarna svona margar manneskjur, sem maður reyndist eiga svo margt sameiginlegt með og átt gott samstarf við. „Enginn maður er eyja, eða sjálfum sér nógur; sérhver maður er hluti af meginlandi, brot af heild” (J. Donne). Löng eftirvænting hafði hvílt á undan þessu námskeiði og enn lengri endurminning fylgir eflaust í kjöl- farið. Ég vil að lokum þakka öllum hlutaðeigandi fyrir yndislega viku í Bergendal. Eva Örnólfsdóttir, Samvinnubanka íslands hf. Gígja Birgisdóttir við afgreiðslu. Fegurðardísir í bankastörfum í dag kannast víst flestir við nafn Gígju Birgisdóttur frá Akureyri, fegurðar- drottningu íslands árið 1986. En ætli öllum sé það jafnljóst að Gígja er bankamaður og félagi í SÍB. Banka- blaðið brá sér á vettvang og smellti mynd af Gígju, þar sem hún var við störf í Grensásútibúi Iðnaðarbankans. En Gígja er hreint ekki sú eina úr síðustu fegurðarsamkeppni sem hefur lagt fyrir sig bankastörf. Hinar eru Rut Róbertsdóttir og Hlín Hólm sem unnið hafa í Landsbankanum og Eva Georgs- dóttir í Búnaðarbankanum. Banka- blaðið sendir öllum stúlkunum bestu framtíðaróskir.

x

Bankablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.