Bankablaðið - 01.12.1986, Blaðsíða 37
37
Umræður á fundinum fóru aðallega fram i umræðuhópunum.
Kynningarfundur
SÍB á Vesturlandi
sögubær sem byggður var eins og
steinaldarbær. Þar lifir fólk af
landsins gagni og nauðsynjum hluta úr
ári og einkum dvelur þar skólafálk að
sumarlagi.
í Hilleröd er sumardvalarstaður
Danadrottningar, Fredensborgarhöll
sem stendur við Esrum vatnið. Frá
höllinni er fagurt útsýni yfir akra og
græna skóga. í baksýn sést í strendur
Svíþjóðar handan Eyrarsunds.
Nær Kaupmannahöfn er svo Dyre-
havsbakken eða Bakken, elsti og
skemmtilegasti skemmtigarður í
heimi segja Danir enda 402 ára gamall.
Bakken svipar óneitanlega til Tívolís
en er þó ólíkur að öðru leyti. Enginn
aðgangseyrir er t.d. greiddur við inn-
ganginn, sem er óvenjulegt með slíka
garða.
Á leiðinni til íslands þarf að gista
tvær nætur í Færeyjum meðan ferjan
fer til Bergen. Slík bið er vel þess virði
því ekki gefst oft tækifæri til að
heimsækja þessa nágranna okkar þótt
þeir séu svo nærri.
Við komuna til Seyðisfjarðar fannst
manni ótrúlega stutt síðan ferðin hófst.
Þó voru liðnar tæplega sex vikur.
Norðurleiðin var valin heim og má
réttilega segja að við höfum farið
hringveginn með viðkomu í Dan-
mörku, Svíþjóð og Færeyjum. Það stóð
einnig á endum að við komuna til
Reykjavíkur voru aðeins tveir dagar til
200 ára afmælishátíðar borgarinnar
sem varð nokkurs konar framhald
Tívolístemmningar frá Kaupmanna-
hafnardvölinni.
Laugardaginn 27. september sl. hélt
stjórn SÍB kynningarfund með banka-
fólki á Vesturlandi. Var fundurinn
haldinn í hinum ágætu húsakynnum
Hótels Stykkishólms. Höfðu trúnaðar-
menn allra útibúa svo og í sparisjóði
Mýrarsýslu unnið vel að undirbúningi
hans með skrifstofu SÍB og mættu alls
um 80 manns á fundinn. Fundarmenn
komu víða að, allt frá Króksfjarðarnesi
að Akranesi.
Skrifstofa SÍB undirbjó einnig fund-
inn í samvinnu við þau starfsmannafé-
lög sem þarna áttu hlut að máli.
Stjórnarmenn úr starfsmannafélögum
Búnaðarbanka og Landsbanka lögðu
land undir fót og hittu starfsfólk hinna
ýmsu útibúa. Gerðu þeir að sögn mjög
góða ferð.
Fundur SÍB hófst eftir hádegið á
laugardaginn og voru fyrst flutt
nokkur stutt inngangserindi. Starf
stjórnar og skrifstofu var kynnt í
grófum dráttum og komið var inn á
nokkur þeirra mála, sem helst eru á
döfinni þessa dagana, svo sem kjara-
mál, Bankamannaskólinn og jafnrétt-
ismál. Lfm þessi mál fjölluðu Hinrik
Greipsson, Hrafnhildur B. Sigurðar-
dóttir og Guðrún Hansdóttir úr stjórn
SÍB og Helgi Hólm framkvæmda-
stjóri. Þá fjölluðu Sólveig Guðmunds-
dóttir og Gunnar Hans Helgason um
hlutverk og starf starfsmannafélag-
anna, en þau eru formenn áðurnefndra
félaga.
Að loknum þessum erindum var þátt-
takendum skipt upp í umræðuhópa
sem tóku sér góðan tíma, bæði til að
ræða hin ýmsu mál og til að spyrja
gestina spjörunum úr. Lauk síðan
fundi um kl. 18.00.
Um kvöldið stóðu heimamenn fyrir
ágætri skemmtun undir öruggri stjórn
Gunnars Atlasonar úr útibúi Búnaðar-
bankans á staðnum. Á undan buðu
stjórnendur bankanna á Vesturlandi til
hugljúfrar móttöku. Um kvöldið bætt-
ust í hópinn margir makar fundar-
manna og var dansinn stiginn af mikl-
um krafti fram eftir nóttu.
Er nú ekki óhætt að taka upp léttara hjal? Það held ég bara.