Bankablaðið - 01.12.1986, Blaðsíða 27

Bankablaðið - 01.12.1986, Blaðsíða 27
Öryggismál 27 nnaskólans Henning Diemar, framkvæmdastj. DBL.: Henning flutti tvo fyrirlestra. Fyrra erindi hans f jallaði um upplýsinga- og kennsluefni það sem gert hefur verið í Danmörku sameiginlega fyrir alla banka og sparisjóði þar. Einnig sýndi Henning tvær sjónvarpsmyndir og var önnur um bankarán en hin um sálræn áhrif rána á bankafólk. í seinna erindi sínu skýrði Henning frá því hvernig bankar í Danmörku skipuleggðu öryggismál sín, hver um sig, og hvaða samstarf er á milli banka þar í landi, og á milli banka innan Norðurlandanna. ísland á ekki aðild að þessu norræna samstarfi. Ráðstefnugestir voru almennt á því, að koma þyrfti á nánara skipulagi slíkra mála hjá okkur og að við mættum margt gott læra af grönnum okkar, hugsanlega með þátttöku í þessu norræna samstarfi. Nokkur umræða spannst um hlut- verk þeirra öryggisnefnda, sem skipaðar hafa verið í bönkum okkar vegna nýrra laga um „öryggi á vinnu- stað”, hvort útvíkka ætti verkefni þeirra inn á þau svið, sem til umræðu voru á ráðstefnunni, eða hvort skipa ætti aðrar öryggisnefndir, sem hefðu ekki aðeins þetta eftirlitshlutverk, heldur hefðu beinar heimildir til fram- kvæmda og aðgerða á þessu sviði, eins og sumir bankar virðast gera. Guðjón Skúlason: Skipulagsdeildir bankanna hafa mikið með ýmis konar öryggismál að gera við nýbyggingar og endurskipu- lagningu húsnæðis bankanna. Skólinn leitaði því eftir því að fá innlegg frá slíkum aðilum og gekkst Guðjón Skúla- son, viðskiptafræðingur hjá skipulags- deild Landsbankans, inn á að ræða þar nokkur öryggismál sem honum eru hugleikin þessa dagana. Guðjón fjall- aði helst um þær sérkröfur, sem gera þarf til húsnæðis undir bankastarf- semi með tilliti til alhliða öryggis. Öryggiskerfi og öryggisbúnaður, sem bankarnir hafa keypt frá útlöndum, hefur yfirleitt reynst vel, þó hann sé hannaður fyrir aðrar aðstæður og lítið hafi mætt á honum enn. Þó væri nú verið að endurbæta gamla öryggis- kerfið sem tengist lögreglunni, þar sem næmleiki þess hafi verið miðaður við aðrar aðstæður en eru hjá okkur nú. Hætta getur steðjað að hjá okkur hér á landi úr öðrum áttum en frá ræn- ingjum og misyndismönnum. Kannski hefur verið minni gaumur gefinn að séríslenskum atriðum við skipulagn- ingu bankahúsnæðis, s.s. jarðskjálfta- hættu, flóðum og skriðuföllum eða jafnvel eldgosum. Þetta eru atriði sem við sjálfir verðum að finna lausn á, því mjög mikil verðmæti gætu farið for- görðum, jafnvel mannslíf, ef ekki er vandlega hugað að þessum málum. Hannes Þorsteinsson, aðalféhirðir Landsbankans: Hannes ræddi aðallega um peninga- flutninga fyrr og nú og taldi að mjög blessunarlega hafi tekist til í þeim efnum, þó að stundum sé óvarlega farið. Hannes vildi að flutningamenn væru betur undir störf sín búnir, t.d. með leiðbeiningum og námskeiðum. Jón Snorrason, fulltrúi rannsóknarlögreglustjóra: Jón ræddi aðallega um rannsókn rána og svikamála í bönkum. Jón taldi mjög þýðingarmikið fyrir farsæla lausn slíkra mála að bankafólkið gerði sér vel grein fyrir því hvað skiptir máli við rannsóknina. Með fræðslu, um- ræðum og heilbrigðri skynsemi ættu góðir bankamenn að geta auðveldað mjög lausn slíkra mála og forðað óhöppum og slysum. Þetta á ekki að- eins við gjaldkerana, heldur einnig þá sem næstir þeim starfa og jafnvel yfirmenn afgreiðslustaðarins. Nokkrar umræður urðu í framhaldi af máli Jóns um rannsóknir og yfir- heyrslur lögreglu yfir bankamönnum vegna ýmissa minni háttar óhappa eða atburða í daglegu starfi og fannst sumum sem óþarflega harkalega hafi verið gengið að bankamönnum og hafi slíkt stundum leitt til erfiðleika og jafnvel uppsagna góðra starfsmanna. Spurt var hverjir ættu að gæta hags- muna og velferðar slíkra aðila? Aðrir vildu meina að uppfræða þyrfti banka- menn um það að þeir gætu átt yfir höfði sér slíkar yfirheyrslur vegna mála sem upp geta komið í banka þeirra þó þeir sjálfir séu alsaklausir, og ættu menn ekki að taka slíkt illa upp. Bankamönnum sjálfum væri fyrir bestu að slík mál upplýstust sem allra fyrst, því að mjög þrúgandi getur verið að starfa í umhverfi, þar sem grun- semdir og gróusögur eru á kreiki um óupplýst brot. Sigtryggur Jónsson, sálfræðingur: Sigtryggur fjallaði á mjög áhrifa- ríkan hátt um afleiðingar afbrota í bönkum og áhrif afbrotanna og rann- sóknanna á sálarheill starfsmanna. Ræddi hann hvernig slíkt geti lýst sér og hvaða ráða væri unnt að grípa til að forðast enn frekari erfiðleika. Tiltók hann nokkur dæmi um slíkt, en lagði þó alveg eins út frá dönsku sjónvarps- myndinni um eftirverkanir ráns í bankaútibúi (Du er ikke alene). Við bankarán er það ekki aðeins gjaldker- inn sem gæti sýnt sjokkáhrif eða aðra vanlíðan, heldur og aðrir sem nær- staddir væru og jafnvel yfirmennirnir. Allt slíkt eru eðlileg mannleg viðbrögð og eiga ekki að leiða til varanlegs tjóns, ef rétt er á málum haldið. Aðalatriðið er að sýna stillingu og skilning, og sýna þeim sem hjálparþurfi eru hlýju og vinsemd. Heimsókn í Seðlabankann Eitt atriði dagskrárinnar var að þiggja heimboð í Seðlabankann til að kynnast öryggismálum varðandi pen- ingageymslur og verðmætaflutninga í nýju byggingunni við Arnarhól. Björn Tryggvason, aðstoðarbankastjóri, tók á móti ráðstefnugestum, en Stefán Þórarinsson, rekstrarstjóri, ásamt hönnunarstjórum og verkfræðingum bankans útskýrðu rækilega einkenni og kosti nýju aðstöðunnar. Þórður B. Sigurðsson, forstjóri RB, skýrði einnig frá öryggismálum varðandi tölvu- vinnslu í húsinu en gat ekki boðið mönnum að ganga þar um sali af ör- yggisástæðum. Niðurstöður: Fyrirfram var ekki stefnt að því að fá neinar sérstakar niðurstöður eða til- lögur í ráðstefnulok, heldur var til- gangurinn frekar að vekja menn til umhugsunar hvern í sínum banka um ýmis atriði öryggismálá þar. Margir bankanna hafa hugað vel að sumum þessara mála, en aðrir bankar minna

x

Bankablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.